Faxi - 01.06.1975, Page 3
UPP fjölbreyttri málverkasýningu. Mátti
þar sjá m.a. málverk í eigu Keflavíkur-
bæjar, en bærinn á stórt og veglegt lista-
safn. Þá var þar sérstök deild með mál-
verkum þekktustu listamanna þjóðar-
innar í eigu Keflvíkinga og önnur deild
sem eingöngu var helguð Keflvískum
málurum. Þá var keramiksýning og
fleira af haglega gerðum hlutum.
Að lokum þágu gestir veitingar og
bæjarstjórinn, Jóhann Einvarðsson, á-
varpaði forsetahjónin og færði þeim
gjafir til minningar um komuna til
Keflavíkur Forsetinn ávarpaði gesti og
lét þess getið m.a. að hann hefði búist
við góðu af Keflvíkingum, en ekki slíku
afreki sem þessi sýning væri.
En Keflavíkurhátíðin ’74 var ekki ein-
göngu sýningar. Á laugardagskvöldið 1.
júní var hátíðarsamkoma í Félagsbíói
með þátttöku Lúðrasveitar Keflavíkur,
Karlakórs Keflavíkur, Kvennakórs Suð-
urnesja, Strengjasveitar Tónlistarskól-
ans í Keflavík og Leikfélags Keflavíkur.
Hátíðaræðu flutti Ragnar Guðleifsson
og Hilmar Jónsson las upp.
Þegar hér er komið sögu, er fyrsta
degi þessara hátíðahalda að ljúka og
aðeins hefur verið dregin upp heildar-
mynd þess sem gerðist. Mikill fjöldi
kom, sá og heyrði þennan dag og út-
varpið helgaði fréttaauka sinn um kvöld
ið hátíðinni, m.a. með viðtali við Lúðvík
Jónsson og Jóhann Einvarðsson. Sjón-
varpið tók við sér daginn eftir og sum
dagblöðin gerðu hátíðinni góð skil í máli
og myndum. Skipulagðar voru hópferðir
utan af landi í heimsókn, m. a. þing-
ntannaheimsókn og boðuð koma á sænsk-
um hóp frá vinabæ Keflavíkur í Svíþjóð.
Af öðrum helstu atburðum þessarar
viku, auk þess að sýningar voru opnar
má nefna málverkasýningu í Iðnaðar-
mannasalnum hjá Áka Granz og Bene-
dikt Gunnarssyni, endurtekna hátíðar-
dagskrá í Félagsbíó, bókmennta- og tón-
iistarkynningu er fór fram í húsnæði
Tónlistarskóla Keflavikur, þar sem fram
komu 5 rithöfundar með Keflvískt efni
°g nemendur Tónlistarskólans flutti tón-
verk.
Lúðrasveit Keflavíkur lék öðru hvoru
við Barnaskólann. Þá fór franr sjó-
stangaveiðimót í umsjá veiðifélagsins
Sjóstöng og Hestamannafélegið Máni
var með mót á Mánagrund. Lokadagur-
lnn, sem var 9. júní, sjómannasunnu-
dagur, var að sjálfsögðu helgaður sjó-
mönnum, undir stjórn Sjómannadags-
ráðs, en kl. 20 um kvöldið var sýningum
lokað, fánar dregnir niður og hátíðinni
slitið.
Það er samróma álit allra, að þessi
hátíð hafi farið fram með miklum ágæt-
um og öllum þeim, er að henni stóðu
verið til sóma. Margt, sem talið var
gleymt og grafið kom í dagsins ljós og
ekkert vafamál er að væntanlegt byggða-
safn auðgaðist mikið af munum og minj-
um, sérstaklega þó myndum og sýning-
arkössum vegna sýningardeildar þeirrar
er byggðasafnsnefnd stóð að. Mörg fé-
lög fengu kipp í sig og gróska kom í
þau mörg. Fjölmargir einstaklingar
lögðu fram gífurlega vinnu og tíma, án
endurgjalds, til að þessi hátíð yrði að
raunveruleika og ber að þakka þeim
frábært starf. Þá er og rétt að geta þess
að sum félög lögðu og fram mikið starf
í þágu hátíðarinnar og má þar sérstak-
lega nefna Kvenfélag Keflavíkur og
Björgunarsveitina Stakk en þeir tóku að
sér margvísleg þjónustu og hjálparstörf,
auk þess að sjá um öryggisþjónustu á
sýningarstöðunum, en þar var saman-
komið tugmilljóna verðmæti og margt
sem óbætanlegt er. Af öðrum aðilum,
sem alveg sérstaklega ber að færa þakk-
ir eru Björn Stefánsson, er hafði veg
og vanda af málverkasýningunum og
Jón Tómasson og Pál Jónsson er sáu um
og höfðu alla stjóm á frímerkja- og
tækjasýningunni ásamt starfi hins sér-
staka pósthúss í Barnaskólanum. Að
lokum ber að þakka og ekki síst velvild
og frábært samstarf skólastjóra Bama-
skólans og starfsliði hans.
Sióminjadeild Keflavíkursýningarinnar
=l±d
Hálfnað
r- erFerk
þáhafiðer
***$%*&
i I-
! JJ •
"■"'ffj k
Kvll
Ml 'ÍIJ
sparnaður
skapar
verðmæti
Samvinnubankinn
F A X I — 7 1