Faxi - 01.01.1981, Side 2
Vinnusalurinn. Veriö aö hefja vinnu eftir afskveringu
Andreas Færseth
Hvaö er húsiö stórt og hvernig
er þaö notaö?
- Grunnflötur hússins er 784
ferm., tvær hæöir. Á efri hæö er
aöalvinnusalur, skrifstofur, stór
kaffistofa og rúmgóö hreinlætis-
aöstaöa auk geymslu. Allt er
þetta húsrými vel úr garöi gert,
bjart, góð lýsing og eftir fyllstu
kröfum um vinnuaöstööu.
Þetta húsnæöi er aö veröa of lítiö
Netaverkstæði Suðurnesja
Neteverkstæöi Suöumesja á tuttugu ára afmæll um þessar
mundlr. Þaö var formlega stofnaö f vertíöarbyrjun 1961. Aö
stofnunlnnl stóöu þelr Andreas Færseth og Brynjar Vllmundarson.
Báölr fluttu þeir hlngaö aö noröan, - Brynjar frá Ólafsflrði og
Andreas frá Siglufiröl, en þar haföl hann lært netagerð. Netaverk-
stæöl Suöurnesja varö brátt stórt og mlklö fyrlrtækl, meö stóran hóp
starfsmanna og mlkil umsvlf.
í tllefnl afmællslns átti ég stutt samtil vlö forstjórann, Andreas
Færseth, sem jafnframt er einn elgandl aö N.S. frá 1. janúar 1980.
Hver voru tildrög aö þvi aö þiö
fluttuö hingaö suöur og stofn-
settuö hór þetta myndarlega
iönaöarfyrirtæki?
- Á þeim árum var mikið
aflaleysi fyrir norðan. Síldin
varla sást árum saman og
atvinnuleysi því mikiö. Þaö var
hins vegar talaö um atvinnu og
uppgrip hjá vinnufúsum
höndum suður á Reykjanes-
skaga. Við vorum ungir og
áhugasamir og vildum reyna
fyrir okkur, vildum ryöja okkur
braut til bættrar afkomu.
Fannst þér hér vera góöur
jarövegur til aö hefjast handa og
vinna aö þinni iöngrein?
- Já, hér voru þá mikil umsvif í
útgerö, mikil gróska í síldveiö-
um, reknetaveiöi, snurpunóta-
veiöi og árviss þorskanetaveiöi.
Ekkert netaverkstæöi var til hér
um slóðir og því tilvaliö aö
freista gæfunnar.
Var ekki mikiö átak aö koma
netaverkstæöinu á laggirnar?
- Það var erfiöast að fá hent-
uga vinnuaðstööu. Viö vorum á
hrakhólum meö húsnæöi fyrstu
mánuðina. Svo var þaö í
ársbyrjun 1961 að okkur
bauöst braggi upp við Flugvall-
arveg til leigu. Þar stofnuðum
viö Netaverkstæöi Suðurnesja
og unnum þar bara tveir,
kannski kjarklitlir, en vongóöir.
Viö höföum ekki veriö lengi í
bragganum þegar verkefnin
hlóöust svo á okkuraö viöfórum
aö leita eftir stærra húsi. Þaö
reyndist þá vera iönaöarhús-
næöi til sölu rétt hjá braggan-
um, 4-5 sinnum stærra. Okkur
leist vel á húsiö og keyptum það.
Þar var vinnuaöstaða fyrir 10-15
menn.
Ekki voruö þiö lengi i þessu
húsi?
- Nei, þaö var mikil gróska í
starfseminni og okkur buöust
stööugt stærri og fleiri verkefni.
Við leituöum jpví til Keflavíkur-
bæjar eftir lóö úndir iönaöarhús,
en fengum synjun. Þá snerum
við okkur til Valdimars Björns-
sonar, sem fór meö lóöamál
Njarövíkinga og fengum þá lóö
við Reykjanesbraut, sem hús
okkar stendur nú á. Viö fluttum í
þaö síöla árs 1963.
WTU
vrn
Kaupfélag Suðurnesja
FAXI - 2