Faxi

Årgang

Faxi - 01.01.1981, Side 13

Faxi - 01.01.1981, Side 13
Kaldalóns- tónleikar 1981 A Kaldalónskvöldi varaösjálfsögöu nokkur þátttakaGrindvíkinga. Barna- og unglingakór söng þar Kaldalónslög undir stjórn Eyjólfs Ólafssonar, skóla- stjóra Tónlistarskóla Grindavíkur. Ljósm. Guófinnur í tilefni af því að liðin voru 100 ár frá fæðingu Sigvalda Kalda- lóns voru haldnir minningartón- leikar í Festi, að tilstuðlan Bóka- safns Grindavíkur. Allgóð að- sókn var að tónleikum þessum og er ekki ofreiknað að um fjög- urhundruð manns hafi sótt þá. Tónleikar þessirtókust vel, dag- skráin var afar fjölbreytt og lista- fólkinu vel tekiö. Dagskrána setti hr. Einar Kr. Einarsson og rakti hann helstu æviatriði Sigvalda Kaldalóns af frábærri snilld. Ekki verðurfarið nánar út í æviferil Sigvalda hér, en bent skal á síðasta jólablað Faxa í því sambandi. (Þar er að finna grein um Sigvalda Kalda- lóns). Mörg gullkorn runnu af vörum Einars, sem lengi var skólastjóri í Grindavík og mikill vinur þeirra hjóna og aðdáandi. Leyfi ég mér aö vitna í nokkur þeirra. Fyrst rakti Einar aðdrag- andann aö komu Sigvalda til Grindavíkur, sem er flestum kunnur: .... Akfært var nú orðið milli allra byggðarlaga í Keflavíkur- héraði og mun Sigvaldi Kalda- lóns, sem þá var oröinn heilsu- veill, hafa hugsað gott til skipt- anna, þótt ekki væri átakalaust að yfirgefa góða vini þar vestra, en þeim var hann bundinn vin- áttu- og tryggðarböndum eftir góð kynni og langa þjónustu. En nú var ekki húsnæði á lausu í Keflavik fyrir héraðslækninn. Hvað var til ráða? Nú brugðu Grindvíkingar hart við. Þeir voru því vanir í kröppum sjó að grípa lagið snöggt, „leggja allt undir". Og undir stjórn sveitarhöfðingj- ans, Einars G. Einarssonar í Garðhúsum, buðust þeir til að hýsa héraðslækninn. Sigvaldi Kaldalóns naut mikils trausts Grindvíkinga sem læknir. Sjúkl- Einsöngvarar: Ingibjörg Þóröardótt- ir, 11 ára, og Linda Waage, 15 ára, sungu báöar Kaldalónslög. Ljósm. Guöfinnur inga sína annaöist hann af mikilli umhyggju. Og vegna kynna og reynslu af lækni sínum, Sigvalda Kaldalóns, undu Grindvíkingar því illa að fá ekki lækni til sín, þegar hann varð að láta af störfum vegna vanheilsu. ( Grindavík samdi Sigvaldi mörg sönglög. Mig grunar að innst inni hafi S.K. stundum kveinkað sér örlítiö undan tóm- lætislegum umsögnum sumra gagnrýnenda um sönglög hans, en þjóöin unni og söng lögin hans. Hann fann að í þjóðarsál- inni mundu þau lifa löngu eftir að skvaldur samtímans væri þagnað. Almenn félagsmál lét Sigvaldi Kaldalóns til sín taka, vildi vekja menningarblæ í mannlegu sam- félagi .... .... Eitt sinn efndu þeir bræður, Sigvaldi og Eggert, til tónleika i Kvenfélagshúsinu, og er Eggert taldi mál að kveðja sönggyðjuna, efndu þeir til kveðjutónleika þar. Báðir voru þeir bræður viðkvæmir í lund, áttu báðir í sálu sinni dýrlega strengi er hljómuðu yndislega á góðri stundu. Ég hygg að enginn sem þarna var gleymi nokkurn tíma þessu kveðju- kvöldi .... .... Sumariö 1945 veiktist S.K. skyndilega, fékk heilablæöingu, lamaðist mikið og átti örðugt með mál. Viö ágæta hjúkrun konu sinnar komst hann afturtil nokkurrar heilsu. Ég gleymi því aldrei er Sigvaldi komst áfætur, ég studdi hann inn i herbergið, sem hann vann jafnan í að tón- smíðum sínum. Augun hvörfl- uðu að flygelinu og hjá því sett- ist hann - fingurnir léku ekki lengur um nótnaborðið, höfug tár hrundu niður vangana. Lit- auðgum starfsdegi var lokiö. Sigvaldi Kaldalóns unni heitt æskustöðvunum í Reykjavík og þar andaðist hann í skjóli fjöl- skyldu sinnar 28. júlí 1946. Grindvíkingar horföu með trega eftir Kaldalónshjónunum og börnum þeirra. Allir höfðu á ein- hvern hátt notið mannkosta þeirra og umhyggju. Með brott- för þeirra hjóna lauk merkum þætti í byggðarsögu Grindvík- inga .... Dagskráin var kynnt jafnóðum af frú Guðveigu Sigurðardóttur, sem lagt hefur drjúgan skerf að menningarmálum í Grindavík. Leysti hún það verk vel af hendi. Ekki skal tíunduð söngskráin hér, það er annarra að gera - þó skal fyrst minnast á Garðar Cortes, Ólöfu Harðardóttur, Halldór Vilhelmsson og Sól- veigu Björling, ersungu einsönc við undirleik Guðrúnar Kristins- dóttur píanóleikara. Þarna mátti heyra margar gullperlur ís- lenskra sönglaga og voru undir- tektir mjög góðar. Þá söng blandaður kór undir stjórn Sig- valda S. Kaldalóns yngri (sonar- sonur tónskáldsins), viö góðar unditektir. Framlag Grindavíkur var Barna- og unglingakór undir stjórn Eyjólfs Olafssonar, tvær ungar og efnilegar stúlkur sungu einsöng, þær Ingibjörg Þórðardóttir 11 ára og Linda Waage 15 ára. Ingibjörg söng „Sofðu, sofðu, góði" og Linda „Nóttin var sú ágæt ein“. Tónleikar þessir tókust í alla staöi vel og á Bókasafn Grinda- víkur hrós skilið fyrir framtak þetta. Eyjólfur Olafsson Grindvíkingar Fyrsti gjalddagi fasteignagjalda var 15. janúar, sá næsti verður 15. marz og sá síðasti verður 15. maí. Gjaldendur fasteignagjalda í Grindavík eru góðfúslega beðnir að gera skil á réttum gjalddögum. Bæjarstjcri FAXI - 13

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.