Faxi

Volume

Faxi - 01.01.1982, Page 3

Faxi - 01.01.1982, Page 3
lofti. Árið 1946 hreyfði Ingibjörg í Garðhúsum hugmyndinni um stofnun björgunarsveitar. Hún bar þá tillögu formlega upp á næsta ári og var björgunarsveit- in þá formlega stofnuð. Fyrst var hún skipuð 10 mönnum. Tómasi Þorvaldssyni var faliö að velja mennina og veita sveitinni for- ystu, og var hún upphaflega skipuð þessum mönnum auk Tómasar: Sigurður Þorleifsson varaformaður, Guðmundur Þor- steinsson, Árni Magnússon, Reginbaldur Vilhjálmsson, Jón A. Jónsson, Sigurður Gíslason, Vilbergur Aðalgeirsson og Her- mann Kristinsson og Þorvaldur Kristjánsson. Fjölgað var í sveitinni í þremur áföngum og nú er hugmyndin að fjölga enn - úr 40 í 60 manns. Allur þungi slysavarnastarfs- ins hefur síðan hvílt á björgunar- sveitinni, en deildin sem slík er þó ómetanleg og ómissandi bakhjarl með fjárstuðningi sin- um og félagsstarfi. ( dag eru um 400 félagar i Slysavarnadeild- inni Þorbirni. Hinn 6. jan. 1947 strand- aði enski togarinn Louis frá Fleetwood skammt frá Hrólfsvík á Hraunsfjöru. Fimmtán manns var bjargað, en einum skolaði fyrir borð og drukknaði hann. Hinn 28. febrúar 1950 strand- aði olíuflutningaskipið Clam undir klettabelti við Reykjanes. Það var hörmulegt sjóslys. Fimmtíu mannaáhöfn varáskip- inu, 23 tókst að bjarga en 27 drukknuðu við að fara um borð í skipsbátana, sem brotsjóirnir brutu í spón og drukknuðu flest- ir þeirra. Þessa atviks verður getið nánar síðar í kvöld. Hinn 15. apríl 1950 strandaði enski togarinn Preston North End frá Grimsby á svokölluðum Syðstaboða skammt frá Geir- fuglaskeri, 40 mílur úti í hafi. Strand hans mun hafa borið að með lágum sjó. Lenti skipið á blindskeri. Við aðfallið munu flestir skipverjar hafa farið frá borði á skipsbátum. Var þeim síðar bjargað af nærstöddum skipum. Eftir um borð voru 6 menn. Okkur barst beiðni frá Slysavarnafélagi (slands um að freista þess að hjálpa til. Allir bátarvoru ílandi. Þungursjórog ekki sjóveður. Fengum viö Fróða frá Njarðvík til þess að fara meö okkur. Skipstjóri var Egill Jónasson, en hann var öllum hnútum kunnugur á þessum slóðum. Ferðin á strandstað tók 5 klukkustundir. Aðkoman var þannig, að komið var nær flóði og stóð ekkert upp úr af skipinu nema handriö á stjórnborðsvæng brúarinnar. Á því héngu 6 menn. Brotsjóir gengu stöðugt yfir skipið og færðu skipið og mennina í kaf. Undrun sætti, að þeim tókst að halda sér. Milli ólaga og brotsjóa sást í brúarhornið og handrið stjórnborös megin á hvalbak. Egill hafði ekki langa umhugs- un, heldur ákvað að sigla hlé megin upp á skerið. Dýpi var um 3 faðmar. Það var kastað akkeri nokkuð frá skipsflakinu. Við skutum línu yfir til mannanna. Viðbrögð þeirra urðu þau, aö þeir gripu í línuna og hentu sér í sjóinn og reyndu að svamla til okkar. Þá slitnaði akkerisfestin hjá okkur og tókst okkur að komast nær mönnunum. Fjórum mönnum tókst að ná með sæmilegu móti með því að kasta út bjarghringum og línu og með því að krækja í þá. Þeim fimmta var bjargað með svipuðum hætti, en við illan leik. Þeim sjötta fipaðist sundið og barst hann í áttina að soginu aftan við bátinn. Okkur tókst að krækja í ermina á stakknum, en hún stóð þá ein upp úr. Maðurinn komst fyrst til meðvitundar eftir 5 klukkustundir. Hinn 30. marz 1953 strandaði togarinn Jón Baldvinsson undir Hrafnkelsstaðabergi á Reykja- nesi með 42 manna áhöfn. Strandið bar að með lágum sjó. Leiðin út á strandstað var löng og erfið, eins og vegurinn var þá. Þó tókst að komast á strandstað á tiltölulega skömmum tíma og okkur tókst að bjarga allri skips- höfninni, en undir það síðasta gekk yfir allt skipið, enda þá mjög aðfallið. Hinn 7. febrúar 1962 strandaði vélbáturinn Auðbjörg frá Reykja vík við Hópsnes. Sex manna áhöfn var bjargað i land. Hinn 20. desember 1971 hlekktist m.b. Arnfirðingi á hér í innsiglingunni með 11 manna áhöfn og var öllum bjargað í land. Hinn 27. febrúar 1973 hlekkt- ist m.b. Gjafari frá Vestmanna- eyjum á í brimi og stórsjó á leið út vikina. Lágsjávað var og tók skipið niðri svo að gat kom á það. Þegar komið var á strand- stað var komiö hörku aðfall. Við skutum línu út í bátinn og tókst að bjarga öllum frá borði. Sjóirn- ir gengu yfir skipið meðan þeim síðustu var bjargað og hálftíma siðar var skipið komið á kaf í brotsjóina. Hinn 4. ágúst 1974 strandaði m.b. Hópsnes á Gerðatöngum með tveimur mönnum og var þeim bjargað í land. Hinn 15. september 1977 strandaði Pétursey með einum manni og var honum bjargað með tækjum björgunarsveitar- innar. Er það síðasta björgun sveitarinnar með fluglínu- tækjum. Þá er lokið þessari upptaln- ingu. Hins vegar er starf slysa- varnadeildarinnar og björgunar- sveitarinnar fólgið í fleiru en björgun manna úr sjávarháska. Mörg eru þau skiptin, sem sveitin hefur verið kölluö út til ýmis konar aðstoðar og björg- unarstarfa við sjávarsíðuna, til leitar að týndu fólki og vegna náttúruhamfara, t.d. meöan á gosinu stóð i Vestmannaeyjum, en það yrði of langt upp að telja. Mér er bæði Ijúft og skylt aö segja það hér, að aldrei hefur staðið á neinum hér í Grindavík að bjóða sig fram til björgunar- starfa. Á það jafnt við karla sem konur. En vissulega hefur fólk skipt með sér verkum. Sumir hafa staðið í svokallaðri fremstu viglínu, aðrir við aðstoð í landi og flutning á mönnum og hjúkr- un í heimahúsum. Flyt ég þeim öllum alúðarþakkir fyrir langt og gott samstarf í þessum efnum sem öðrum, er að slysavörnum lúta. Starfsfólki öllu hjá Slysa- varnafélagi (slands, svo og forystumönnum slysavarna i ná- grannabyggöarlögum þakka ég einnig góða samvinnu og aö- stoð á liðnum árum. Ég ætla mér ekki þá dul að geta talið upp allar þær mörgu og góðu gjafir, sem slysavarna- deildinni hafa borist, bæði frá innlendum og erlendum aðilum, Haraldur Henrýsson, varaform SVFf, flytur ávarp og þakklr tll Þorbjörns- manna fyrir farsælt starf á vegum SVFl. en öllum færi ég bestu þakkir fyrir. ( upphafi gáfu landeigendur i Grindavík land undir björgunar- skýli. Það var byggt i sjálfboða- vinnu og fyrir framlag Grindvík- inga sjálfra. Það er nú 50 ára gamalt og þarf að standa sem minnisvarði um framtak Grind- víkinga í slysavarnamálum. Nú hefur deildin eignast nýtt og stærra hús skammt frá hinu gamla. Verður þaö væntanlega vígt og tekið í notkun á næsta ári. Þetta er engin tæmandi skýrsla um starf Slysavarna- deildarinnar Þorbjörns, og vafa- laust hef ég gleymt einhverju, sem minnast hefði átt á. Yfirleitt hef ég sneitt hjá þvi að nefna nöfn, enda slíkt oft nokkurt vandamál. Ég hef áður minnst á, að nokkur deyfð hafi komið í starf- semi deildarinnar um tíma. Út af fyrir sig tel ég það ekki óeðlilegt. Bæði var það, að engin skips- strönd voru á þeim tíma, sem betur fer, og enginn geturallatið verið á fullum spretti. Hvíldin er nauðsynleg milli átaka, svo aö menn geti endurheimt orku sína, og slysavarnadeildinni er ætlað að starfa um ókomin ár. Kyndill sá, er kveiktur var meö stofnun Slysavarnafélags ís- lands hefur þegar logað i hálfa öld og lýst út til stranda, inn til dala og upp til heiða. Það er ósk mín, að á þessum kyndli slokkni ekki og hann megi ávallt lýsa því fólki, sem vill vinna að því að koma i veg fyrir óhöpp og slys og bjarga fólki úr nauðum. Megi sú keðja deilda og björgunarsveita Slysavarna- félags (slands, sem spannar um landið allt, ávallt verða þess megnug að vera raunverulegt björgunarbelti fyrir alla þá, sem lenda í nauðum á sjó eða landi. Fulitrúar slysavarnadeilda og björgunarsveita í umdæmi I taka viö fána Slysavarnadeild- arinnar Þorbjörns. F.v.: Guörún Ármannsd. Keflavik, Þorsteinn Marteinss. Keflavík, Erlingur Thoroddsen Rvfk, Jón Borgarss. Höfnum, Kristján Hall Rvlk, Hulda Sigurjónsd. Hafnarf., Guörún Guömundsd. Rvlk, Guörún Pótursdóttir Garöi, Höröur Kristinss. Sandg., Haraldur Henrýss. Rvlk, Bjarni Björnss. Hafnarf., Ásgeir Hjálmarss. Garði, Sig- urður Guöjónss Sandg., Einar Sigurjónss Hafnarf., Eggert Ólafss. Kjalarn. Gunnar Tómass. Grindav., stendur aö baki Einars. - Tómas Þorvaldsson afhendir fánana. FAXI-3

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.