Faxi - 01.01.1982, Síða 8
Vígsluhátíð
Við vígslu nýbyggingar
Sjúkrahúss Keflavíkurlækn-
ishéraðs, 19. des. sl., voru
margir gestir og sveitar-
stjórnarmenn af Suðurnesj-
um. Eftir að hafa skoöað hús-
næði og tæki var boðið til
kaffiveislu i Stapa.
Forstjóri Sjúkrahússins,
Eyjólfur Eysteinsson, stjórn-
aði samkvæminu og flutti
ávarp. Margar ræður voru
fluttar, m.a. af heilbrigðis-
málaráöherra Svavari Gests-
syni. Einnig voru sjúkrahús-
inu færðar gjafir.
Aðalræðuna flutti formað-
ur sjúkrahússtjórnar, Stein-
þór Júliusson, bæjarstjóri,
og fer hún hér á eftir:
Háttvirtur heilbrigðismálaráð-
herra, virðulegu alþingismenn,
ráðuneytisstjóri heilbrigöis-
ráðuneytis, sveitarstjórnarmenn
og aðrir góðir gestir.
Ég vil í nafni stjórnar Sjúkra-
húss Keflavíkurlæknishéraðs
bjóöa ykkur öll velkomin til
þessa samsætis. í dag fögnum
við merkum áfanga í heilbrigðis-
málum okkar Suðurnesjamanna
þvi að í dag er formlega tekinn í
notkun fyrsti áfangi í nýrri upp-
byggingu Sjúkrahúss Keflavík-
urlæknishéraðs.
Það hafði lengi verið Ijóst, að
nauðsynlegt var að stækka
Sjúkrahúsið hér í Keflavík. Um-
ræður um það hófust af alvöru
árið 1958, en engin ákvörðun var
tekin fyrr en með samþykkt
stjórnar sjúkrahússins í nóvem-
ber 1971. Það var svo árið 1972
að fyrsta fjárveiting fékkst til
byggingarinnar, en þá var fyrir
alvöru hafin undirbúningur
málsins.
[ samráði við heilbrigðismála-
ráðuneytið vargerð heildaráætl-
un um uppbyggingu sjúkra-
hússins, þar sem gert var ráð
fyrir að byggja húsið í þremur
áföngum. Fyrsti áfanginn er sá
sem formlega er verið að taka í
notkun í dag, annar áfanginn
skyldi verða heilsugæslustöðog
þriðji áfanginn á að rúma allt að
60 sjúkrarúmum auk aðstöðu
fyrir ýmsar stoðdeildir.
Það var í nóvember 1975 að
hafist var handa og fyrsta skóflu-
stungan tekin af Valgerði Pét-
ursdóttur, ráðskonu við Sjúkra-
húsið í Keflavík. Þá var ráðgert
að húsið yrði tekið í notkun árið
1978, en af ýmsum ástæðum
drógust framkvæmdir á lang-
inn, og það var ekki fyrr en á
þess ári sem húsiðertekiðífulla
notkun.
Nú þegar þessum fram-
kvæmdum er lokið, er skipan á
Sjúkrahúsinu í Keflavík í megin-
dráttum sem hér segir:
Á efri hæð hússins eru legu-
deildir þar sem eru 38 sjúkra-
rúm, þar af 8 sjúkrarúm á fæð-
ingargangi, fæðingarstofa,
skurðstofa, vaktstofur, lín- og
ræstingarherbergi, sótthreins-
unarherbergi og setustofa, svo
nokkuð sé nefnt.
Efri hæðin er samtals 1.oo8,3
ferm.
Á neðri hæð hússins eru
ýmsar þjónustudeildir svo sem
röntgen, rannsóknarstofa, skoð-
unar- og viðtalsherbergi, ritara-
herbergi, þar er einnig spenni-
stöð, vararafstöð, geymslurfyrir
eldhús og gang, þvottahús, bún-
ingherbergi fyrir starfsfólk,
eldhús og matsalur. Þar er
einnig fyrirhuguð slysastofa.
Rétt er að taka það fram, að hluti
þjónusturýmis er hannaður með
frekari stækkun sjúkrahússins
fyrir augum, svo sem eldhúsið.
Neðri hæðin er samtals
1.025,4 ferm. Húsið er því alls
2.033,7 ferm, en var áður 731,6
ferm.
Hönnuðir hússins voru Arki-
tektastofan sf., arkitektar þeir
örnólfur Hall og Ormar Þór
Guðmundsson, og innanhúss-
arkitekt Guðmundur Einarsson,
auk Fjarhitunar hf., Rafteiknun
hf. og Hönnunar hf.
Framkvæmdir hafa annast frá
byrjun byggingaframkvæmda
Bragi Pálsson, Samtak hf. og
Reynir hf., sem hefur verið aðal-
verktaki hússins.
Framkvæmdadeild Innkaupa-
stofnunar ríkisins hefur haft um-
sjón með verkinu af hálfu verk-
i-ra v.: Ylinæknu, v.MU.össont Orrr.af Þor Guðmunasson arkitekt,
Valgeröur Pétursdóttir ráöskona, örnólfur Hall arkitekt, og Rögnvaldur Þor-
kelsson verkfræölngur .
Ilmvötn og baðvörur frá
hinum heimsþekkta
}it$AINl^URENr
í úrvali fyrir karlmenn
og konur.
Apótek Keflavíkur
Steinþór Júlfusson, bæjarstjóri
kaupa og hefur umsjónarmaður
verið Björn Sigurðsson, en fyrir
hönd byggingaraðila Eyjólfur
Eysteinsson. Öllum þessum að-
ilum er hér með þökkuð þeirra
störf.
Fullyrða má að stigið hafi
verið stórt skref fram á við í
heilbrigðismálum okkar Suður-
nesjamanna, því aðstaða öll
gjörbreytist fyrir starfsfólk og
aðstaða fyrir þá sem á vist þurfa
að halda, auk þess sem sjúkra-
rúmum fjölgar um 13. Þrátt fyrir
fjölgun sjúkrarúma úr 25 í 38 er
ekki reiknað með að fjölga þurfi
starfsfólki að nokkru ráði við
stofnunina, þar sem þessir 38
sjúklingar liggja nú á einni og
sömu deildinni á annarri hæð
sjúkrahússins. Áður var hluti
hinna 25 sjúklinga á tveimur
hæðum. Breyting þessi hefur
augljóslega mikið liagræði í för
með sér, þar sem launakostn-
aður sjúkrahúsa er mikill, 65-
75% af heildarkostnaði.
En þó einum áfanga sé náð,
má ekki láta staðar numið, því
enn er þörfin til úrbóta knýjandi,
þó einkum er varðar heilsugæsl-
una.
Á sl.ári fór mikill tími í að
kanna hvort æskilegt væri að
leysa húsnæðisvanda heilsu-
gæslustöðvarinnar í Keflavík
með því að taka á leigu húsnæði
eða kaupa. Nokkur hús voru
skoðuð og rætt við eigendur
þeirra. Niðurstaða varð þó sú, að
æskilegast væri að halda fyrri
áætlun og halda áfram með
uppbyggingu sjúkrahússins
með því að byggja heilsugæslu-
stöðina í tengslum við það, en
nokkur hluti þáverandi ástands
var leystur með því að flytja
mæðraskoðunina í húsnæði
sjúkrahússins. Allt kapp var svo
lagt á að fá fé á fjárlögum ársins
1981 til að hægt væri að hefja
framkvæmdir á þessu ári, bæði
með viðtölum við formann fjár-
veitinganefndar, þingmenn kjör-
dæmisins og ráðuneytið. Enn-
FAXI-8