Faxi - 01.01.1982, Side 9
fremur meö bréfaskriftum m.a.
með bréfi 3. okt. 1980, en þar
segir m.a.:
„Stjórnir Sjúkrahússins og
Heilsugæslustöðvarinnar hafa
gert áætlun um að II. áfangi í
uppbyggingu sjúkrahússins
verði heilsugæslustöð, sam-
byggð sjúkrahúsinu eins og lög
gera ráð fyrir. III. áfangi er áætl-
aður nýtt sjúkrahús með allt að
60 sjúkrarúmum.
Svaitarfélögin á Suðurnesjum
hafa starfrækt heilsugæslustöð í
leiguhúsnæði að Sólvallagötu
18 í Keflavík. Húsnæðið er 140
ferm. ( upphafi var reiknað meö
þessu húsnæði aðeinstil bráða-
birgða, enda fullnægir það
engan veginn þeim lágmarks-
kröfum sem lög gera ráð fyrir.
Um nánari upplýsingar á starfs-
aðstöðu og þeirri þjónustu sem
veitt er við heilsugæslustöðina
vísa ég i hjálögð bréf. ífyrsta lagi
skýrslu hjúkrunarforstjóra, Jó-
hönnu Brynjólfsdóttur, og í öðru
lagi skýrslu Ingibjargar
Magnúsdóttur, deildarstjóra í
heilbrigðismálaráðuneytinu, og
í þriðja lagi bréf Kjartans Ólafs-
sonar, héraðslæknis, dags. 30.
sept. 1980, til starfshóps um
heilbrigðismál, c/o Þröstur
Ólafsson, og bréf sama aðila
dags. 22. apríl 1980 til deildar-
stjóra Jóns Ingimarssonar.
Eins og fram kemur hér, er
mjög aðkallandi aðframkvæmd-
ir við II. og III. áfanga geti hafist
hið allra fyrsta. Stjórnir Sjúkra-
húss Keflavíkurlæknishéraðs og
Heilsugæslustöðvar Suðurnesja
fara því hér fram á það við Al-
þingi, að veitt verði fé til hönn-
unar heilsugæslustöðvar við
sjúkrahúsið þegar á fjárlögum
næsta ár.
Virðingarfyllst, f.h. stjórnar
Sjúkrahúss Keflavíkurlæknis-
héraðs, Steinþór Júlíusson."
Þetta bréf var sent fjárveit-
inganefnd og heilbrigðisráðu-
neytinu. Kjartan Ólafsson hér-
aðslæknir hafði jafnframt lagt
málinu lið með ítrekuðum til-
lögum til heilbrigðisyfirvalda um
úrbætur. Ekki verður ráðist í
stórframkvæmdir eins og
heilsugæslustöð, nema til sé fé
til framkvæmda. Það urðu því
nokkur vonbrigði að ekki skyldi
fást fé á fjárlögum þá til annars
en byrjunar hönnunarkostnað-
ar, kr. 50.000.
Þó má segja að það hafi verið
betra en ekkert, því með þessari
fjárveitingu veitti ríkið í raun
heimild til áframhaldandi upp-
byggingar sjúkrahússins, a.m.k.
að áliti okkar, og þarsem það var
álit stjórnar heilsugæslustööv-
arinnar að flýta bæri fram-
kvæmdum, gerði stjórnin eftir-
farandi samþykkt á fundi sínum
14. jan sl.:
,,Það er löngu Ijóst, að hús-
næði það sem heilsugæslan er
nú í, er orðið allt of lítið. Starfs-
aðstaða er af þeirri ástæðu mjög
erfið og biðstofa ófullnægjandi.
Til að bæta úr til bráðabirgða
verður mæðraskoðun flutt í hús-
næði sjúkrahússins, þegar það
verður tilbúið eftir lagfæringar,
væntanlega um mánaðamótin
jan.-febr. Stjórn heilsugæslu-
stöðvarinnar hefur samþykkt að
hefja byggingaframkvæmdir að
nýrri heilsugæslustöð sem yrði í
tenglum við nýju álmu sjúkra-
hússins, og lagði hún mikla
áherslu á það við fjárveitinga-
nefnd og heiIbrigöisyfirvöld að
fé yrði veitt til framkvæmda á
þessu ári (1981). Á fjárlögum
1981 er aðeins veitt nkr. 50.000
(gkr. 5.000.000) upp í hönnunar-
kostnað. Gerð hefur verið frum-
kostnaðaráætlun yfir bygging-
una og er gert ráð fyrir að kostn-
aður við að steypa undirstöður
og Ijúka gólfplötu sé nýkr.
400.000 á verðlagi í nóv. 1980.
Stjórn Heilsugæslustöðvar
Suðurnesja telur knýjandi nauð-
syn á að á þessu ári verði hafist
handa um byrjun á byggingu
heildugæslustöðvar og leggur
því til við sveitarstjórnirnar að á
fjárhagsáætlun þeirra verði
varið fé til framkvæmdanna,
samtals nýkr. 600.000, til hönn-
unar og framkværhda. Fyrir þá
upphæð ætti að vera hægt að
Ijúka gólfplötu. Stjórnin lítur svo
á, að með fjárveitingu á fjárlög-
um, þó lítil sé, hafi fengist sam-
þykki stjórnvalda til að hefja
framkvæmdir, og að á næstu
árum muni verða veitt fétilfram-
kvæmdanna eftir þvi sem
byggingunni miðar áfram."
Haldnir voru fundir með
læknum og fulltrúum starfs-
fólks, svo og starfsmönnum
ráðuneytis umfyrirkomulag inn-
an húss. Arkitektar hófu jafn-
fraint að vinna að teikningu
hússins og útreikningi á rýmis-
forsögu.
Gerð var ný kostnaðaráætlun
sem miðast við byggingavísitölu
682 stig og er uppá6.720.000 kr.
Stjórnin lagði síðan alla áherslu
á að fá fjárveitingu á fjárlögum
ársins 1982, svo hægt væri að
hefja framkvæmdir af fullum
krafti.
Nú hafa þau gleðitíðindi bor-
ist, að í fjárlagafrumvarpi ríkis-
ins fyrir næsta ár (1982) er all
veruleg upphæð, eða kr.
3.500.000, sem renna á til annars
áfanga, sem er bygging heilsu-
gæslustöðvar, allar teikningar
eru nú tilbúnar og unnið er að
gerð útboðsgagna. Fyrir þá fjár-
veitingu sem fengist hefur, ætti
örugglega að vera hægt að gera
húsnæðið fokhelt á næsta ári og
e.t.v. verður hægt að gera húsið
tilbúið undir tréverk, og ef jafn
rausnarlega verður staðið að
fjárveitingum árið 1983 og nú er
gert, verður væntanlega hægt
að Ijúka byggingu heilsugæslu-
stöðvar 1983, eins og upphaf-
lega var ráðgert.
Ég vil nota þetta tækifæri til að
þakka öllum þeim sem lagt hafa
þessu máli lið. Ég vil að lokum
þakka öllum þeim fjölmörgu
sem unnu að þeim áfanga
sjúkrahússins, sem nú er
formlega tekinn í notkun. Megi
heill og hamingja fylgja þessum
húsakynnum um ókomin ár,
Suðurnesjabúum til heilla.
Út á djúpið
Út á djúpið einn á báti
aldinn rær.
Bungumikla báran kalda
bátinn þvær.
Grimmur Ægir, grettinn,
hvæsir,
gamalær.
Löðrung bátnum lipra, sterka
léttan slær.
Ingvar Agnarsson
Opið alla virka daga frá
kl. 9 - 22 á kvöldin.
Alla laugardaga og sunnu-
daga frá kl. 10 - 20.
Leitið ekki langtyfirskammt.
Úrvalið er hjá Nonna & Bubba.
Munið lága vöruverðið okkar.
FAXI-9