Faxi

Volume

Faxi - 01.01.1982, Page 10

Faxi - 01.01.1982, Page 10
FJ\yzi Útgefandi: Málfundafélagi Faxi, Keflavik Ritstjóri: Jón Tómasson Afgreiösla: Hafnargötu 79, sími 1114 Blaðstjórn: Jón Tómasson, Ragnar Guðleifsson, Kristján A. Jónss. Setning og umbrot: GRÁGAS HF. Prentun og frágangur: Prenthúsið Reykjanes- kaupstaður I janúarblaði Faxa 1971 skrifaði ég grein, sem bar heitið ,,Reykja- neskaupstaður", og mæiti þar eindregið meö sameiningu þessara tveggja sveitarfélaga, Keflavikur og Njarðvíkur. Þótt ellefu ár séu liðin siðan þessi grein var skrifuð, eru þau rök er þar voru til færð með samningum enn í fullu gildi. Þar segir m.a.: ,,Fyrir tæpum þrjátiu árum skeði það óhapp, að ég tel, að ÍStakks- firði voru tvö sveitarfélög mynduð úr einu, Njarðvikurhreppur og Keflavikurhreppur. Ástæðan fyrir þessari sundrungu voru að minu áliti mjög léttvægar, og að þvier kunnugir menn herma mun það hafa haft úrslitaáhrif á skiptingu hreppsins, aö 30 ha. dieselmótor, er keyptur var gamall frá Stokkseyri, var staðsettur i rafstöðinni í Kefla- vik til Ijósaframleiðslu þar, ístað þess að koma honum fyrir i Njarðvik og láta hann framleiða rafmagn til götulýsingar þar. “ Á þvi er enginn efi, að skipting hreppsins á sinum tima hefur haft neikvæð áhrif á framgang ýmissa góðra mála á svæðinu og þá sér- staklega skipulag- og þjónustumála. Miklar umræður og blaðaskrif fara nú fram um þessi mál, og virðist þar blómgast best hinn gamli hrepparigur, er við öll þekkjum stro vel úr sögunni. Jafnvel geta menn ekki komið sér saman um að ræða hagkvæmni slíkrar sameiningar, og er þá illa farið, ef svo er komið. Staðreyndin er sú, að átta til niu þúsund manna byggðarlag þarf ekki tvöfalt stjórnkerfi með öllu sem þvi tilheyrir. Fjarlægðir eru sára- litlar, atvinnusvæðiö sama, höfnin sú sama. Félags- og þjónustu- störf eru byggö upp af sama fólki á vixl. íbúar beggja byggðarlaga verða áfram jafn góðir Njarðvikingar og Keflvikingar eins og þeir voru áður, þó þeir séu i einu bæjarfélagi, og samkeppni milli þeirra um góða hluti heldur áfram. Allt tal um eignir og skuldir, tekjur og gjöld einstaklinga iþessum bæjarfélögum og hjá bæjarfélögunum sjálfum er léttvægt. Slikar tölur breytast svo ört, að sá sem var með betra hlutfall i fyrra getur verið með verra hlutfall i ár. Við sem byggjum þessar vikur erum öll á sama báti atvinnulega og félagslega, þvi er óþarfi að hafa hér tvö bæjarfélög. Félagsfræðinemar í Fjölbrautaskóla Suðurnesja geröu i vetur skemmtilega könnun á afstöðu fólks til sameiningar bæjarfélag- anna. I könnuninni voru 50 manns frá Njarðvik og 150 frá Keflavík eftir handahófs úrtaki. Af heildarniðurstöðu má ráða, aö með sam- einingu voru 55.5%, á móti voru 19.9% og óákveðnir voru 24.6%. Eftir byggðarlögum skiptast niðurstöður þannig: Keflavik: Með 65.5% - Á móti 10.5% - Óákveðnir 24.0%. Njarðvik: Með 26.6% - Á móti 46.9% - Óákveðnir 26.6%. I Njarðvik er tæplega helmingur ibúanna andvigursameiningunni, en i Keflavík er yfirgnæfandi meirihluti meö sameiningu. Gunnar Sveinsson Fallegt handbragð er á Vogsósaglettum, sem Bókaútgáfan Þjóðsaga gaf út nú fyrir jólin. Handbragð snillings- ins Hafsteins Guðmundssonar við gerð bóka leikafáireftir. Höf- undinn, Kristin Reyr, þarf vartað kynna fyrir lesendum Faxa, svo vel erum við kunnug honum að allri persónulegri gerð hans. Hins vegar er ekki úr vegi að líta yfir það, sem Hafsteinn Guð- mundsson segir um listamann- inn Kristin Reyr, á bókarbaki: ,,Árið 1942 kom út fyrsta bók frá hendi Kristins. Þá strax hljóma nokkuð sérstæðir ómar frá hljómhvísl hans. Þessi bók sem hér sýnir blöð sín er hin tíunda í röðinni. Auk Ijóðlistar- innar hefur hann fengist við tón- smíðar og hafa þær einnig verið gefnar út. Jafnframt hafa frá hans hendi komið út leikrit. Einnig hefur hann fengist við myndlistina og í þeim heimi hefur hann verið iðinn og einlægur, eins og í Ijóðlistinni. Allt sem Kristinn gerir gæðir hann lífi Ijúfrar einlægni og heiðarleika góðs listamanns. Lesanda, hlustanda og sjáanda kemur hann ávallt á óvart. Húmorinn sækir sífellt áskáldið, Við birtum hér FYRSTU FYRSTU Upp skal rísa mín auðar hlín af ástartrega og orða glettur á örk til þín yndislega. Kristinn Reyr en uppistaðan í vef hans er þó djúp og skyggn alvara oft borin upp af gamansemi. ( þessari bók er þjóðsagan viðlagið í kveðskap hans. Eirík- ur á Vogsósum, sem er kunn þjóðsagnapersóna, stígur hátt- bundinn á fjöl við undirleik hörpu skáldsins. það er ánægju- leg tilviljun í leik skáldsins, þegar það horfir til baka um 40 ára spönn, með glettur í auga mót kærum átthögum sínum, Suðurnesjunum. Báðir koma þeir okkur á óvart, Eiríkur á Vogsósum og listamaðurinn Kristinn Reyr. GLETTUR úr bók Kristins: GLETTUR Mörg er tíðin eg mæðist hér en man þig skarta evuklæðum í örmum mér ástin bjarta. Hleyþa fáki í hendingum að heilsa á séra vininn Eirík á Vogsósum og vísitera. Þefa um gættir af þeirri tíð þar og staldra en frægur varð hann með frónskum lýð fyrir galdra. Heyrði ég kornungur hneigð bess manns hafða á orði en gerast doktor í greinum hans guð mér forði. Viltu lesa mitt villupár vonarstjarna ef eg freista að yrkja skár ertu þarna? Ekki skyggni eg öld og klerk í einni lotu hverf því til þín með hafið verk í hugans þotu. STEINDÓR SIGURÐSSON Sérleyfis og hópferðabílar NJARÐVlK-PÓSTHÓLF 108-SÍMI 2840-3550 FAXI-10

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.