Faxi - 01.01.1982, Page 13
Kirkju- og safnaöamál
Fermingarbörn í Keflavík og Njarövík. - 2. tbl.
Fermingarbörn í Grindavík, á Hvalsnesi og Út-
skálum. - 3. tbl.
Aheit og gjafir til Keflavíkurkirkju. - 4. tbl.
Minningargreinar
Ágúst Sveinsson, Keflavík. - 7. tbl.
Einar Dagbjartsson, Grindavik. - 3. tbl.
Einar Júlíusson, Keflavík. - 4. tbl.
Erlendur Jónsson, Keflavík. - 1. tbl.
Guðlaug Stefánsdóttir, Ytri-Njarðvík. - 1. tbl.
Guðmundur Kristjánsson, Grindavík. - 4. tbl.
í minningu systkinanna í Holti, Keflavík. - 3. tbl.
Jóel og Bjarni Guðmundssynir, Garöi. - 4. tbl.
Jón Guðbrandsson, Höfða, Vatnsleysuströnd.
Karl Eyjólfsson, Keflavik. - 6. tbl.
Kjartan Ólafsson, Keflavík. - 6. tbl.
Kristinn Jónsson, Grindavík. - 7. tbl.
Kristján Sigurgeirsson, Keflavík. - 7. tbl.
Margrét Daníelsdóttir, Grindavik. - 6. tbl.
Valgerður Jónsdóttir, Grindavík. - 6. tbl.
Sjávarútvegur
Lítil trilla sökk í Sandgerðishöfn. - 3. tbl.
Stórtjón á m.b. Helga S. - 3. tbl.
Aflaskýrslur Suöurnesjabáta 1. jan. til 30. apríl.
4. tbl.
Inn- og útflutningur í Landshöfn Keflavík-Njarö-
vík. - 5. tbl.
Sjómannadagurinn í Keflavík 1981. - 5. tbl.
Qrn Einarsson, aflakóngur í Keflavík. - 5. tbl.
Óskar Þórhallsson, aflakóngur í Sandgerði. -
5. tbl.
Formannaskipti hjá SÍF. - 6. tbl.
Verslun
Járn & Skip stækkar. - 2. tbl.
Mikil umsvif í viðskiptalífinu. - 7. tbl.
Úr flæðarmálinu (fréttir). - 7. tbl.
Ýmislegt
Fyrsta stúlkan hér á landi lýkur atvinnuflug-
mannsprófi. - 1. tbl.
Fræðslustarf Krabbameinsvarnar Keflavikur og
nágrennis. - 4. tbl.
Fræðslubæklingar Tryggingastofnunar ríkisins.
7. tbl.
Vogsósaglettur. Ný Ijóðabók eftir Kristin Reyr.
7. tbl.
Þessi mynd birtist i 6. tbl. Faxa 1980. Þarvarpar Ólafur Þorsteinsson þvi fram,
hvort umrædd mynd sé af verslunarhúsum á Náströnd i Keflavik. Svo er ekki.
Myndin sýnir hús Grams-verslunar i Stykkishólmi, sem brunnu árið 1912.
FÁEIN ORÐ UM
GAMLA LJÓSMYND
í 6. tbl. Faxa 1980 (bls. 160) birtir
Ólafur Þorsteinsson gamla
Ijósmynd og varpar því um leiðfram,
hvort myndin sýni gömlu Nástrand-
arhúsin í Keflavík. Þessu svaraði
kona úr Reykjavík í jólablaðinu frá
fyrra ári (bls. 176) og kvað umrædda
mynd vera frá Stykkishólmi. Mun
það rétt vera, enda er sama mynd
prentuð í bæklingi um húsakönnun í
Stykkishólmi (bls. 42), útg. í
Reykjavík 1978. Könnun þessagerði
Hörður Ágústsson og birtir hann
ýmsar niöurstööur sínar í bæklingn-
um. Þareru líkagamlarog nýjarljós-
myndir af einstökum húsum og
húsaröðum, einnig myndir af hús-
hlutum, gluggum, dyraumbúnaöi
o.fl., sein fellur undir stílfræöi.
Með Ijósmyndinni á bls. 42 er texti
þar sem segir, að umrædd hús séu
verslunarhús Grams kaupmanns,
sem brunnu 1912. Er myndin birt hér
lesendum til frekari glöggvunar, þar
sem svo langt er um liðið síðan hún
birtist í blaðinu.
( bæklingi þessum er rakin bygg-
ingasaga Stykkishólms í samhengi
við almenna sögu, frá öndverðu fram
til 1940, yngri hús voru ekki tekin
með í könnunina. Auk húsamynda
eru þar uppdrættir, sérstakir kaflar
um einstök hús og sérkenni þeirra.
Einnig skrá yfir aldur, byggingarefni
og fyrstu húsbyggjendur ásamt
stuttu yfirliti yfir byggingasögu
landsins. Siðast eru tillögur til
sveitarstjórnar um friðun og varð-
veislu einstakra húsa í bænum.
Bæklingurinn fæst hjá Sögufélag-
inu í Reykjavík.
Skúll Magnússon
IBÚAFJÖLDI í KEFLAVlK
1790 - 1822
íbúum í Keflavík fjölgaði hægt
framan af og eiginlega ekki að marki
fyrr en á 20. öld með tilkomu vél-
bátaútgeröar. Verslun í Keflavíkertil
komin vegna legu staðarins, og
þróun byggðarinnar fylgdi í kjölfar
vaxandi verslunar. Hvort tveggja
byggðist á sjávarafla sem lagöur var
þar á land eða fluttur þangað frá ver-
stöðvum á Suðurnesjum.
Árlð 1703 voru fbúar I Keflavik 6
samkvæmt manntali Árna Magnús-
sonar, en 1762 voru þeir 8 sam-
kvæmt manntali sem tekið var það
ár.
Átjánda öld:
Ár íbúar
1790 ........................ 38
1791 . 36
1792 ........................ 26
1793 ........................ 22
1794 ........................ 18
1795 ........................ 24
1796 ........................ 23
1797 ........................ 21
1798 ........................ 19
1799 ........................ 19
Nftjánda öld:
1801 26
1802 ........................ 33
1803 ........................ 35
1804 ........................ 34
1806 ......................... 49
1809 ......................... 35
1812 ......................... 29
1814 ......................... 38
1816 ........................ 39
1817 ........................ 45
1818 ........................ 39
1819 ........................ 41
1820 ........................ 54
1821 . 37
1822 ........................ 56
Sóknarmannatöl Útskála liggja til
grundvallar þessum tölum, og er rétt
að miða við þær, jafnvel þó frávik
standi einhvers staðar íöðrum heim-
ildum. Prestar hófu á seinni hluta 18.
aldar að taka sóknarmannatöl ár
hvert, þó stundum hafi það ekki allt-
af verið gert reglulega. Héldu þeir
þessum sið fram á 4. tug þessarar
aldar, er Hagstofan tók endanlega
að sér slíkar skrár.
( sambandi við ofangreindar tölur
þykir mér rétt að benda áhugasöm-
um lesendum á grein mína í 5. tbl.
Faxa 1980, þar sem rakin er í stórum
dráttum þróun byggðar í Keflavík á
18. og 19. öld.
Keflavik, 19. des. 1981.
Skúli Magnússon
MIKILL VEÐRAHAMUR
gekk yfir Suð-vesturlandið um jól og
i byrjun jan. Forveðriö, sem skall á
2. dag jóla, er eitt hið versta sem
menn muna eftir. Mörg mannvirki
skemmdust. Stærsta tjónið varð
sjálfsagt hjá Landshöfninni, en þar
gjoreyöilagðist oliubryggjan - gainla
trébryggjan, sem var fyrsta hafnar-
mannvirkið sunnan á Vatnsnesinu.
All margir bátar urðu fyrir meiri eða
Hjónin Olafur Helgi Hjálmarsson og Sigríður Jóna Þorbergsdóttir ásamt
börnum sinum 7, er komust til fulloröinsára. Fremri röð f.v.: Ölafur, Helga,
Sigriður, Ragnhildur, Sveinn. Aftari röð f.v.: Kjartan, Ásta, Oddný, Friðrik.
Afkomendur Sigríðar og Ólafs eru nú 78. Látnir eru 6.
FAXI - 13