Faxi - 01.01.1982, Page 15
Vinsælir kaupmenn
hætta matvöruverslun
Þegar lýöveldishugsjónin haföi náö hámarki meö Þingvalla-
fundinum 1944, fór eldmóöur um marga hugumstóra fslendinga.
Heit voru strengd til manndómsverka og margir ungir menn sáu
glæstar framabrautiráýmsum sviöum þjóölífsins. Systurnar hag-
sæld og farsæld voru þeirkostir, sem allirhugöusthreppa og fyrir
einbeittan vilja, dugnaö og næga bjartsýni náöu flestir nokkrum
árangri - mismiklum eftir aöstæöum og leiöum sem farnar voru
aö markinu. Viöa má sjá þess merki aö meö þvi merkisári voraði
vel - birti yfir islenskri þjóö - lokaskrefiö var tekiö, stigiö frá
myrkum öldum til bjartrar framtiöar. Hér á Suöurnesjum eru
nokkur dæmi þessum oröum til staöfestu og vil óg meö fáum orö-
um rekja eina sögu því til sönnunar.
Þorbjörn Einarsson haföi
lokið námi í Reykholti og í Flens-
borg á fyrstu árum heimsstyrj-
aldarinnar, og réðist þá sem
skrifstofumaður hjá Miðnes hf. í
Sandgeröi. Hjá Miðnes hf. var
Jón Axelsson einnig í starfi á
þessum árum. Þar hófust kynni
þeirra. Þeir eru jafnaldrar,
fæddir 1922, báðir atorkusamir
og staðráðnir í að koma sér
áfram af eigin rammleik, en
báðir voru úr barnmörgum fjöl-
skyldum komnir og áttu ekki
annan auð en þann sem bjó í
eigin framtaki og vinnuþoli.
Þegar ég hitti þáfélaga, spurði
ég þá hvenær þeir hefðu byrjað
að versla.
,,Á miðju ári 1944 losnaði
verslunaraðstaða í húsi sem
Garður hf. átti. Við leituðum
ráða hjá Axel Jónssyni, skrif-
stofustjóra hjá Miðnes hf., og
hvatti hann okkur til að leita eftir
að fá húsnæðið á leigu. Kannski
hefur það ekki þótt girnilegt að
láta þetta athafnatæki í hendur
svo ungum og óreyndum mönn-
um. Óskar Halldórsson, lands-
kunnur athafnamaður, var þá
stór hluthafi í Garði hf. og það
mun hafa verið fyrir hans til-
stuðlan að við fengum leigu-
samninginn. Við byrjuðum svo
með mátvöruverslun f húsnæði
Garðs hf. í október 1944. Við
unnum báðirviðverslunina.sem
við skíröum Nonni & Bubbi, og
urðum strax að bæta við okkur
tveim afgreiðslumönnum."
Hvenær stofnuðuö þið útibú-
ið i Keflavfk?
,,Það var áriö 1948 að við
tókum á leigu Ásbergsbúð að
Hafnargötu 27 í Keflavík. Versl-
unarstjóri þar var Einar Axels-
son (bróðir Jóns). Þar versluð-
um við fram undir 1960, fyrst
með matvöru en síðustu árin
með málningu, áhöld o.fl.“
Brann ekki verslun ykkar i
Sandgerði einhvern tima?
„Jú, hús Garðs hf. brann
haustið 1949 og þarmeð verslun
okkar og vörulager. Þá bauðst
okkur verslunaraðstaða hinum
megin götunnar sem Miðnes hf.
átti, og hættu þeir þar með að
versla. Þar vorum við í þrjú ár
eða þar til við fluttum í nýtt og
myndarlegt verslunar- og ibúð-
arhús sem Garður hf. og Miönes
hf. byggðu sarnan."
Starfsfólk Nonna og Bubba fyrst efttr aö flutt var i nýju verslunlna i Sand-
gerði. F.v.: Jón Axelsson, Þorbjörn Einarsson, Stefán Friðbjörnsson, Vilborg
Vigfúsdóttir, Þórður Guðmundsson og Ásmundur (aökomumaöur).
Mig minnir að þetta væri ein
alglæsilegasta matvöruverslun
á Suöurnesjum ó þeim tima?
„Þetta var stór og mikil versl-
unarhæð og við lögðum metnað
okkar í að hún væri vel og snyrti-
lega búin og hentaði þeirri þjón-
ustu sem við vildum veita við-
skiptavinum okkar. Hún er enn í
fararbroddi í Sandgeröi. Þarna
versluðum við þartil við hættum
í Sandgerði 1972.“
En þið voruð með fleiri járn í
eldinum?
„Við réðumst í það að taka á
leigu verslunarhæð í stóru versl-
unar- og íbúðarhúsi sem Björn
Finnbogason, oddviti, byggði á
góðum stað í Garði. Þar versl-
uðum við í 3-4 ár. Okkur hafði
lika skilist að við þyrftum að
bæta aðstöðu okkar í Keflavík.
Við fengum hornlóðina við
Hringbraut 92. Þar byggðum við
verslunar- og fbúðarhús. ( þetta
nýja húsnæði fluttum við mat-
vöruverslunina af Hafnargötu 27
árið 1956 og versluðum þar
þangaö til við seldum verslunina
Jónasi Ragnarssyni nú um síð-
ustu áramót, Fyrstu árin vorum
við þar einnig með búsáhöld og
vefnaöarvöru. Við suður-gafl á
húsi okkar byggði Jón Kristins-
son byggingameistari, íbúðar-
og verslunarhús. Hálfa verslun-
arhæð hans keypti Ragnars-
bakarí, en við hinn hlutann. Þar
versluðum við í rúm 10 ár með
búsáhöld, leikföng, fatnað o.fl.
Fyrst var afgreiðslan með hefð-
bundnum afgreiðsluhætti, en
árið 1966 tókum við upp sjálfs-
afgreiðsluformið sem þá var
óðum að ryðja sér til rúms. Á
Hringbrautinni starfræktum við
kjötvinnslu og reykofn."
Voruð þið ekki með bátavið-
skipti?
„í Sandgerði varmikið verslað
við útgerðarmennina. Það var
oft tafsamt og erfitt að koma til
móts við óskir þeirra og þarfir.
Nonni og Bubbl, báðir um þrftugt
Verslun Nonna og Bubba ( Sandgerði þótti falleg verslun á sirium tima og er
enn f fararbroddi verslana þar.
FAXI - 15