Straumar - 01.09.1927, Síða 4
130
STKAUMAR
Hann andaðist hinn 9. ágúst s. 1., af hjartabilun, eft-
ir stutta legu.
Séra Geir var fæddur í Hraungerði í Flóa 1. sept.
1867, sonur Sæmundar prófasts þar, Jónssonar prests á
Breiðabólsstað í Fljótshlíð, Halldórssonar prests í Saur-
bæ á Hvalfjarðarströnd, Magnússonar sýslumanns á
Geitaskarði, Gíslasonar biskups á Hólum, þess er reisa
lét dómkirkjuna þar, Magnússonar prests, Markússonar.
Móðir hans var Stefanía Siggeirsdóttir prests á Skeggja-
stöðum. Hann varð stúdent 1887, sigldi samsumars til há-
skólans í Höfn og lauk þar embættisprófi í guðfræði
1894. Fékst hann síðan við kenslustörf um nokkurt skeið,
bæði í Reykjavík og á Seyðisfirði. Hlaut hann veitingu
fyrir Hjaltastað og var prestvígður þangað 11. maí 1897,
fekk Akureyrarprestakall 8. júní 1900 og var settur pró-
fastur í Eyjafjarðarprófastsdæmi 29. des. 1905, skipað-
ur 8. júní 1907. Hann var skipaður vígslubiskup í Ilóla-
biskupsdæmi hinu forna, 27. des. 1909. Tók biskupsvígslu
vorið 1910 í Hóladómkirkju af herra Þórhalli Bjarnasyni
biskupi. — Sr. Geir var kvæntur Sigríði Jónsdóttur há-
yfirdómara Péturssonar. Hún andaðist 23. okt. 1923. Þeim
hjónum varð þriggja barna auðið og lifa tvö þeirra, Heba
og Jón Pétursson, stud. med.
Séra Geir var afbrigða góður raddmaður og hafði á-
kaflega unun af söng. Hafði hann jafnframt guðfræði-
náminu notið kenslu hjá Peter Jemdorff óperusöngvara,
dönskum, og var í miklu áliti fyrir söng sinn, enda mátti.
svipað um hann segja og mælt var um Jón biskup Ög-
mundsson, að rödd hans væri líkari englarödd en manna.
Stuðlaði rödd hans að því að gera guðsþjónustur hans
fagrar og áhrifamiklar, enda var hann góður kennimaður
og trúr í starfinu. Var hann miklum mun frjálslyndari
en títt er um eldri klerka, og aðhyltist á síðari árum hina
nýrri guðfræði, ekki umhugsunarlaust eða af nýjunga-
girni, heldur af því, að hann sannfærðist á því, að athug-
uðu ráði, að hún væri réttari. Sagði hann kunningjum
sínum frá því, að það hefði eigi orðið sér sársaukalaust,
að skiljast við ýmsar hinar eldri trúarskoðanir, en þetta.