Straumar - 01.09.1927, Blaðsíða 16

Straumar - 01.09.1927, Blaðsíða 16
STRAUMAE 142 ist, að samþyktin gerði ilt verra, og að orsökin var sú, að tvíveðrungur var í orðalagi hennar, svo að hver gat skilið sem hann vildi, en tvíræði í orðum hefir margan misskiln- ing og böl leitt yfir þjóðir og einstaklinga. Greinin átti því að sýna mönnum nauðsyn skýrrar hugsunar og ákveðins, ótvíræðs orðalags. — Eg hélt, að hver maður mætti sjá, að þessi væri tilgangur greinarinnar. Ef einhverjir hafa ekki skilið það, er minni heimsku um að kenna, að setja það ekki skýrar fram, og bið eg því þá menn fyrirgefningar á því, og vona, að þeim skiljist það nú. Hinu neita eg algerlega, að tilgangur greinarinnar hafi verið sá að mannskemma nokkurn mann eða gera lítið úr honum, þó að prestastefnan eða meirihluti þeirra klerka, sem þar sátu, muni hins vegar ekki vaxa að áliti hjá góðum mönnum fyrir gerðir sínar þar. Einnig neita eg því, að nokkursstaðar sé of freklega til orða tekið, — hlutirnir eru nefndir sínu rétta nafni. Undarleg skoðun er það hjá mörgum rosknum mönn- um, að ungir menn eigi að bera virðingu fyrir þeim, fyrir það eitt, að þeir eru rosknir, og ungum mönnum beri að þegja, þó að þeim finnist hinum rosknu eitthvað miður fara. Eg hélt þó, að sannleikur væri sannleikur, hvaðan sem hann kemur. E, M. Kring’sjá. Prestafundur oq safnaðafulltrúa fyrir Múlaprófastsdæmin var haldinn um miðjan júlímánuð að Eiðum. Sóttu liann 10 prestvígðir menn, I guðfræðinemi og 8 safnaðarfulltrúar. Hófst hann með guðsþjónustu, en bænir voru kvölds og morgna. Ýms mál voru rædd á fundinum og tillögur samþyktar. Nokkur erindi voru einnig flutt. Verður hér aðeins drepið á Jitið eitt, en nánar geta menn lesið um fundinn í nýútkomnu Prestafélagsriti og víðar. — Fundurinn ákvað, að hafist skyldi handa um fjársöfnun til stofnunar barnaheimilis á Austur- landi. Aðalhvatamaður þess var séra Ásmundur skólastj. á Eiðum. — Allmikið var rætt um vandræði þau, sem oft yrðu i

x

Straumar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Straumar
https://timarit.is/publication/679

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.