Straumar - 01.09.1927, Page 5
STRAUMAR
131
sýnir samvizkusaman mann og sannleikselskandi. Kom
víðsýni hans glegst í ljós á prestafundinum á Akureyri,
sem haldinn var 20,—22. júlí s. 1. Mun öllum þeim, er
þann fund sátu, verða minnisstæð sannleiksást hans og
drenglyndi í hverju máli. Var á þeim fundi endurreist
Prestafélag hins forna Hólastiftis og þótti hann sjálf-
kjörinn formaður þess. Lauk fundinum með því, að hann
veitti prestunum altarissakramenti, en kendi sjúkleikans,
er leiddi hann til bana, nóttina á eftir og reis eigi úr
rekkju síðan.
Séra Geir varð hvers manns hugljúfi er honum kynt-
ist. Slíkum mönnum farnast vel, bæði þessa heims og
annars. B. K.
Tillög*ur handbókarnefndar.
Nefnd sú, er setið hefir á rökstólum síðan 1925 til
að fjalla um endurbætur á Helgisiðabók íslenzku þjóð-
kirkjunnar, hefir nú sent frá sér' bráðabirgðatillögur til
breytinga, prentaðar í Prestafélagsritinu þ. á. í nefnd-
inni eiga sæti, auk biskups: Árni Bjömsson prófastur í
Görðum, Ámi Sigurðsson fríkirkjuprestur, Friðrik Hall-
grímsson dómkirkjuprestur og Sigurður P. Sivertsen
prófessor. Til viðbótar voru kosnir á Synodus 1927: Har-
aldur Níelsson prófessor, Magnús Jónsson dócent og
Bjarni Jónsson dómkirkjuprestur.
Sendir nefndin tillögur þessar frá sér með þeirri ósk
að fá álit sem flestra, bæði presta og leikmanna. Eru þau
tilmæli viturlega og sanngjarnlega framborin, ef nefndin
tekur síðan eins samvizkusamlega til greina þær athuga-
semdir, sem henni kunna að berast.
Samning helgisiðaformsins er mjög vandasamt verk.
Annarsvegar er þess að gæta, að guðsþjónustan verði
framin á sem fegurstan, innilegastan og áhrifamestan