Straumar - 01.09.1927, Page 13
PTRAUMAE
139
um þeim, er vér nú lifum í; haldi hún síðan áfram á
reynslu- og lærdómsbraut sinni og’ þroskist að vizku og
vexti. Slík, eða mjög áþekk, var trú Krists og frum-
kristninnar; en guðfræðingar myrku aldanna fundu upp
hinmaríki og helvíti, stöðuga og óumbreytanlega sama-
staði, enda þótt Kristur kendi, að mörg væri stigin eða
dvalarstaðirnar í anda-heiminum. Um „híbýli“ (Jóh. 14, 2)
í venjulegum skilningi er ekki að ræða.
Trúmálaleiðtogamir eru nú að komast aftur að þess-
ari hugmynd um framfarir annars heims. Einkum hefir
biskupinn í London kveðið skýi’t upp úr með það, að mað-
uiinn verði ekki að engli eða djöfli alt í einu, er hann skii-
ur við, heldur sé sá sami fimm mínútum eftir andlát sitt
og hann var fimm mínútum fyrir það. Ef þessu er svo
farið, er hann hvorki hæfur himnaríki né helvíti eftir
fomum skilningi þeirra orða. Hann er hvorki fullkomlega
góður, né algerlega illur, en sambland hvorstveggja eins og
áður. Hann er líklegur til mikils þroska, og hann þráir
að svo megi verða, því mun hann taka framförum.
Sönnunin. Nú kunna menn að spyrja. „Hvemig
fáum vér vitneskju um þetta?“ Sjáum til. Hugmyndin
verður líkleg fyrir þá staðreynd, að framþróun býr í öllu,
er vér lítum í kring um oss. Vér höfum lært og tekið fram-
förum allan jarðvistartíma vom, og svo fremi,' sem rök
verða ekki að því leidd, að þessi framför lialdi ekki áfram,
erum vér réttlætt í trú vorri á áframhald þeirra. En til er
einnig verulegt sönnunargagn.Sálarrannsóknirnarfæra oss
það í hendur. Menn gæddir sálrænum hæfileikum sjá svipi
látinna manna og mjög oft birtist einhver þeirra í dýrðar-
Ijóma, eða stundum með roðabjart liöfuð. Þetta gefur til
kynna háan andlegan þroska. í mörgum tilfellum, sem um
er að ræða, hefir ,,sjáandinn“ alls ekki þekt persónu þá,
er bar fyrir augu hans og gat því ekki haft neina hug-
mynd um skapgerð hennar; en þegar bjarmi þessi sést,
kemur æfinlega upp úr dúrnum, að hlutaðeigandi maður
hefir vissulega haft til að bera göfuga eðliskosti í jarðlíf-
inu. Líklegt er því, að bendi til nokkurs sannleika geisla-
baugar þeir um höfuð helgra manna, er sjá má á gömlum