Árbók Héraðssambandsins Skarphéðins - 01.01.1926, Síða 19
19
um, þvi að fyrir þeim hlýtur skólamálið að vera mál
málanna. Á héraðsþinginu kom fram eindreginn og
samtaka áhugi á málinu, og er það sómi U. M. F., að
þeir hafa aldrei, svo vart hafi orðið, látið hreppar
pólitík eða héraðameting spilla sér í þessu máli. —
Er iþess nú vænst, félagar, að þið bregðist vel við
áskorun héraðsþingsins um dagsverkagjafir, og liig’g-
ur metnaður sambandsins við, að þai' greiðist vel úr.
„Margt smátt gerir eitt stórt“. Eitt dagskaup frá
hverjum félaga „Skai*phéðins“-sambandsins verður
drjúg upphæð, þegar saman er komið. Naumast mun
nokkur félagi svo fátækur, að hann geti ekki mist
nokkrar krónur vegna tíginnar hugsjónar. Og vel
teldi eg farið, ef einhverir ykkar spöruðu við sig tó-
bak eða annan algerðan óþarfa, vegna héraðsskólans.
þeir væru menn að meiri. það, sem þarf, er: að
v i 1 j a.
þá vil eg vekja athygli á því, að við héraðsskólann
þarf að komast upp náttúrugripasafn, og gætu U.
M. F. myndað vísi, þess og auðgað það stórum, ef
vilji er til. Væri mér ánægja að leiðbeina eftir mætti
þeim, er við slíka söfnun vilja fást.
Út af till. b. um héraðsskólamálið, í þinggerðinni,
skal þess getið, að ríkisstjórnin hefir synjað um leyfi
til happdrættis.
5. Héraðsmót er ráðgert að halda að þjórsártúni á
sumri komanda, eins og undanfarið. Mun héraðs-
stjómin ekki láta sitt eftir liggja að vanda til þess
sem bezt. En stjórnin ein megnar ekki að bera uppi
heiður mótanna. þar hvílir mikið traust á félögun-
um, og eingöngu á þeim um höfuðþátt mótsins: þátt-