Morgunn - 01.07.1974, Blaðsíða 15
DULARFULI. FYRIRBRIGÐI í FORNRITUM VORUM 13
borgun fyrir örðugleika og strit heillar mannsævi. Ég ætla
ekki að lengja þetta með því að segja ykkur frá því, er fyrir
hann bar. Það kemur ekki beint við umtalsefni mínu nú. En
hins ætla ég að geta, að meðan maðurinn er í þessu ástandi,
heldur hann ekki eingöngu áfram starfi sínu, þó að hann svan
engu, sem á hann er yrt, og segi ekki nokkurt orð. Hann verður
lika margfalt sterkari en hann á að sér, eins og berserkirnir.
Meðal annars setur hann einn 8 tunnur af mjöli af jörðunni
upp i vagninn, lyftir þessum þunga upp 3V2 fet, og mennirnir,
sem á hann horfðu, sjá ekki, að þetta sé honum nein áreynsla.
En það eru ekki eingöngu berserkir í fomritum vorum,
sem vaða eld. Það eru líka helgir menn. Eg bendi ykkur t.d. á
þáttinn af Þorvaldi víðförla. Tveir lieiðnir berserkir skora á
Friðrek biskup, „ef hann hefði þoran til eðr nökkut traust á
Guði sínum, at hann skyldi reyna við þá íþróttir, þær sem þeir
váru vanir að fremja, at vaða logandi eld með berum fótum“.
Biskup neitaði þessu ekki. Þetta skiptið mistókst berserkjunum
iþróttin, þó að þeir væru henni vanir, og biðu bana af. En um
biskup er það sagt, eð hann „gerði fyrir sér krossmark, ok gekk
á eldinn miðjan ok svá fram eftir endilöngum skálanum, enn
logann lagði tvá vega frá honum, sem vindr blési, ok því síðr
kendi hann meinsamligs hita af eldinum, at eigi með nökkuru
móti sviðnuðu hinar minstu trefr á skrúða hans“.
Nútíðarmönnum er það lítt skiljanlegt, að nokkurn tíma liaíi
verið svo algengt að standast eldraunina, að það skuli hafa
komizt inn í lögvenjur og verið tíðkað án allra undanbragða.
En i sumum löndum eru til enn i dag menn, sem vaða eld, eins
og dr. Jón Stefánsson lýsti á sínum tíma. Og í sálarrannsókn-
unum er eldraunin fyrirbrigði, sem menn kannast vel við. D.
D. Home bar eld, bæði í höndunum og á höfðinu, við tilraunir
hjá Crookes. Þetta er einn af hinum sálrænu hæfileikum. Ber-
serkirnir og þeir helgir menn, sem stóðust þessa raun, hafa
vitanlega verið sálrænir menn.
Forspárhæfileikimi er ein af þeim dulargáfum, sem allra
mest ber á í fomritum vorum. Ég get ekki farið langt út í það
mál, þvi að annars yrði þetta alltof langt. Spádómarnir um