Morgunn - 01.07.1974, Blaðsíða 48
46
MORGUNN
fjölmargar máttugar sálir endurholdguSusl, og myndi þetta
verSa á 26. og 27. öld. Hann benti Mikael á það, að hitaupp-
sprettur væru miklar á íslandi og lægja víða mjög nálægt stór-
um isbreiðum. Þetta bendi til framtíðarlandsins. ísinn i jökl-
um landsins verði til að knýja vélar. Þannig muni orkan í
framtíSinni verSa aSalframlei'Ösla tslands og til Islands muni
þjöSirnar leita um framfarir.
Þetta er falleg spá, og tökum við öll undir þá ósk að hún megi
rætast. Er margt ób'klegra en þetta. Ég minnist þess til dæmis,
að alveg nýlega lét enskur verkfræðingur í ljós það álit sitt, að
á Islandi væru alveg sérstök nárrúruskilyrði til framleiðslu
vetnis, sem væri orkugjafi framtíðarinnar. Spáði hann því, að
ísland yrði Kuweit framtíðarinnar, og á hann þar við þá vel-
megun sem mundi hljótast af beitingu og framleiðslu ís-
lenzkrar orku. En eins og menn muna, er Kuweit arabiskt
smáríki, sem svo er auðugt af olíu, að þar þarf enginn maður
t.d. að greiða skatt.
En það þarf sterk bein til að þola góða daga, segir gamall
íslenzkur málsháttur. Og eigi Island eftir að verða auðugt riki
sökum náttúruaflanna, þá er okkur vafalaust hollara að það
gerist með hægfara þróun fremur en það líkist því, þegar dýrir
málmar finnast í jörð og kapphlaup græðginnar setur allt úr
skorðum. Island hefur þegar upp á að bjóða sitt af hverju sem
með degi hverjum verður sjaldgæfara i heiminum, svo sem
heilnæmt loft og hreint vatn, að ógleymdri ósnortinni náttúru.
Arfur okkar er rikur og ber okkur skylda til þess að varð-
veita hann af skynsemd.
Og vissulega væri það stórkostlegt, ef ættland okkar gæti
orðið vitsmunaríki, uppeldisstaður mikilmenna og miðstöð
andlegrar orku. En hvernig megum við vinna að undirbúningi
svo stórkostlegrar framtíðar? Ég hygg, að einfaldast væri að
byrja á sjálfum sér. Byrja ó því að hreinsa til í eigin hugskoti;
að gera sjálfan sig að skárri manni. Mannkynið er ekkert ann-
að en samsafn einstaklinga og allar andlegar framfarir þess
hljóta að hefjast i brjósti einstaklingsins. Ef við i raun og veru
viljum leggja eitthvað af mörkum til andlegrar framtíðar föð-