Morgunn - 01.07.1974, Blaðsíða 41
ÍSLAND VAR ÓSKAI.ANDIÐ
39
á verði, en þó hættulega sár. En þá flæktist skóþvengur hans í
gaddavír og hann hrasaði. Þetta mun hafa orðið honum til lífs,
því hann var tekinn fangi.
Eftir að vopnahlé var samið og hann kom heim, sagði hann
tnér, að þá 28 mánuði, sem hann var fangi í Schneidemul-
fangabúðunum, hafi islenzk kona, búsett i Kaupmannahöfn
og honum alls ókunn, sent honum og tveim félögum hans
brauð og aðra matbiörg og fatnað líka. Þegar hann fór um
Kaupmannahöfn á heimleið fékk hann tækifæri til þess að sjá
þennan velgerðarmann sinn og þakka henni, og talaði hann
rnjög hlýlega um hina miklu samúð og alúð Dana. Hann er nú
(þ.e. 1921) á Indlandi með herdeild sinni King’s Royal Rifles
þar sem skærurnar eru harðastar við Wazira-þjóðflokkinn, og
nú hef ég engin tíðindi af honum spurt í nærfellt þrjá mánuði.
Hann hefur tekið próf i indversku og persnesku sem túlkur og
sendiboði í hernum. En sú tilviljun! Þetta kalla ég karma!
En foreldrar Mikaels frá Eyri höfðu engan áhuga á sögu
ættarinnar. Faðir hans var mikill raunhyggjumaður, alvöru-
gefinn, guðhræddur og áhugasamur kennimaður ensku kirkj-
unnar. Hann var gripinn trúboðsáhuga löngu áður en hann
kvæntist og fór til Indlands til þess að boða heiðingjum fagnað-
arerindið. Hann hafði verið vandlega undir það starf búinn og
var vel að sér í Austurlandafræðum.
Mikael Eyre fæddist í Indlandi og var yngstur fimm syst-
kina. En var þeim öllum ólíkur að því leyti, að hann var sá
emi, sem hafði áhuga á sögu ættarinnar, og hafði því numið
Norðurlandamálin.
Kveðst hann muna eftir því, að þegar hann var barn, sýndi
faðir hans þeim systkinum myndir í Illustrated London News
frá þúsund ára hátiðinni, sem haldin var þá á íslandi, árið
1874. Gamli maðurinn ljómaði í framan, þegar hann sagði
börnum sínum frá því hvernig öll þjóðin hefði tekið kristni ár-
ið 1000. Þá sagði hann þeim líka frá ættmóður þeirra og hin-
um fífldjarfa afabróður, sjóliðsforingjanum. Mikael varð stór-
hrifinn af sögunni. En það varð ekki fyrr en mörgum árum
síðar að hugur hans beindist fyrir alvöru til Islands og hon-