Sjómaðurinn - 01.06.1940, Side 43
SJÓMAÐURINN
37
VÉLST J ÓR ASKÓLINN.
Vélstjóraskólanum í Reykjavík var sagt upp 27.
apríl og útskrifuöust þaðan 14 nemeudur að þessu
sinni.
Úr vélfræðideild útskrifuðust:
Ásmundur Friðriksson, Miðfirði............. 1. eink.
Geir J. Geirsson, Siglufirði............... 1. —
Guðmundur Pétursson, Flatey................ 1. —
Jóhann Ingvar Pétursson, Hafnarfirði . . 1. —
Sigurður Haraldsson, Reykjavik.............ág. —
Sigurður G. Sigurðsson, Reykjavilc.... 1. —
IJr rafmagnsdeild útskrifuðust:
Daníel Vestmann, Gimli, Man. Can......ág. einlc,
Eggert Jóhannesson, Húsavík..............2. —
Gunnar Ingólfur Hestnes, Isafirði....... 2. —
Ingólfur Ólafsson, Reykjavík............ 1. —
Jón Hörður Ólafsson, Steinum, Rang. . . 2.
Magnús Hannesson, Árnesssýlu............ág.
Pétur Aðalsteinsson, Dýrafirði ......... 1. —
Völundur Kristjánsson, Þingeyjarsýslu . 2.
MÓTORNÁMSKEIÐ FISKIFÉLAGSINS.
Á vegum Fiskifélags Islands voru á siðastl. vetri
haldin 3 námskeið fyrir vélstjóra. Voru 2 þeirra
hin svokölluðu „minni námskeið“, þ. e. a. s. þau,
sem veita nemendum, að afloknu prófi, réttindi
lil að fara með oliuvélar allt að 150 hestöflum.
Var annað þessara námskeiða lialdið í Reykjavilc
og stóð yfir frá 3. okt.—20. des. Þetta námskeið
sóttu 51 nemandi og luku 47 þeirra prófi. Hitl
námskeiðið var lialdið á Stokkseyri 10. nóvember
—30. janúar. Á því voru 24 nemendur og náðu
þeir allir prófi nema 1, en auk þess tók einn ut-
anskólamaður próf þar.
Þriðja námskeiðið var hið svokallaða „meira
námskeið“, en það veitir nemendum, að afloknu
prófi, leyfi til þess að fara með olíuvélar allt að
450 hestöflum. — Þetta námskeið var lialdið í
Reylcjavik frá 4. okt.—24. fehr., og sótlu það 8
nemendur, er allir gengu undir próf og stóðusL
það. Fai’a nöfn þeirra og meðaleinkunn hér á
eftir: Meðaleink.
Benedikt Sæmundsson, Vestm. .. 7.30 ág. eink.
Einar Jóhannsson, Keflavík ... 5.67 2. —
Finnur Gíslason, Keflavík ........ 7.27 ág. —
Friðfinnur S. Árnason, Akureyri . 5.88 2. —
Hallvarður H. Rósinkarsson, Rvik 5.18 2.
Jón M. Árnason, Alcureyri ........ 7.55 ág. —
Sveinn Þorhergsson, Ilafnarfirði . 5.88 2.
Þórður Á. Björgúlfsson, Akureyri 5.57 2.
(Eftir ,,Ægi“).
Immm Borðn ocí I ta\
Guðmundur Jónsson fimtugur.
Aflakóngurinn og bóndinn að Reykjum i Mos-
fellssveit, Guðmundur Jónsson, skipstj. á Reykja-
horg, átti fimtugsafmæli þann 14. f. m. Allir, sem
til þekkja, óska sjómanni þessum til hamingju,
einnig forsjónin virtist gjöra það, þvi Reylcja-
borg seldi i seinustu ferð fyrir 9469 £, og er það
hæsla sala, sem, þekst hefir liér.
Heppinn skipstjóri — happaskip.
Botnvörpungurinn „Óli Garða“, það er gamli
Otur, varð fyrir mörgum liöppum á tiltölulega
stuttum tíma. Hinn 8. maí hjálpaði hann þrimastr-
aðri skonnortu Tvey sistkin frá bryggjunni í Hafn-
arfirði í vitlausu N.V.-veðri svo að skipið lá undir
stórskemdum. Þá var haldið til Englands með aíl-
ann. 17 mílur vestur af Skerryorevitanum, sem
bektur er m. a. af grein um vitana í síðasta blaði
Sjómannsins og þar fylgdi mynd af, hitti liann
fyrir stóra tvegga lireyfla sprengjuflugvél (kaf-
hátahana) á sjónum, ósjálfbjarga með öllu. Höfðu
þeir skotið neyðarrakettum i fjóra klukkutima án
árangurs þar til Óla Garða bar að. Áhöfnin var 7
manns. Þeir festu nú í flugvélina og drógu hana
til lands og þegar Óli Garða flaut ekki nær landi
þá settu þeir út sldpshátinnog reru henni upp á um
2ja faðma dýpi og lögðu henni þar. Það var á vík
einni við Tiree Island. Þá var lialdið áfram til Fleet-
wood og fiskurinn seldur.
Þegar komið var vestur fyrir Vestmanaeyjar á
heimleiðinni var L.v. Jarlinn að velkjast þar ósjálf-
bjarga; hafði mist skrúfuna, og því fátt til úrræða.
En piltarnir á Óla Garða brugðu lionum aftan í
dallinn og sigldu með Jarlinn til Reykjavikur og
skiluðu honum þar. Það var hinn 21. mai eða rétt-
um 13 dögum eftir að farið var úr firðinum. Skip-
stjóri á Óla Garða er Baldvin Halldórsson. En að
þessu sinni var skipstjórinn Jón Stefánsson, sem
annars er stýrimaður á Óla Garða.