Sjómaðurinn - 01.06.1940, Blaðsíða 8

Sjómaðurinn - 01.06.1940, Blaðsíða 8
2 SJÓMAÐURINN íslenzku skipstjórarnir í Boston bera af öðrum skipstjórnarmönnum þar. ORLÁKUR GUÐMUNDSSON, sonur séra Guð- mundar í Gufudal og Rebekku Jónsdóttur, var í heimsókn hér í maímánuði og var viðstaddur á 75. aldursdegi móður sinnar. Hann fór aftur vestur um haf i byrjun fyrra mánaðar, en hann er stýrimaður á togara, sem gengur frá Boston. Þar eru eins og kunnugt er allmargir íslenzkir fiskimenn og eru þeir i miklum metum. Sést það meðal annars af því, að í Boston eru um 60—70 íslendingar, þar af um 15 skipstjórár, og höfðu 12 þeirra skip, er Þorlákur fór að vestan. Sjómaðurinn liafði tal af Þorláki áður en liann fór vestur til atvinnu sinnar og spurði hann um landa i Boston og af lífi þeirra og starfi. Þorlákur sagði meðal annars: „Okkur Islendingum, sem erum á togurunum, sem ganga frá Boston og undirborgum hennar, líður vel. Atvinnan er nóg, afli sæmilegur og kaup þolanlegt. Eg hef nú stundað sjómennsku frá Bost- on i 10 ár og mér líkar lífið vel. Iiygg eg og að hið sama sé hægt að segja um aðra landa mína þar.“ „Hvað eru íslensku skipstjórarnir margir, sem sigla frá Boston? „Eg held að þið hérna heima fáið bezta hug- mynd um það, ef eg tel upp íslenzku skipstjórana og skip þeirra, en eg tel aðeins þá, sem höfðu skip, þegar eg fór að vestan. Magnús Magnússon er skipstjóri á togaranum „Heklu“; það er eini togarinn, sem ber íslenzkt nafn, enda er hann eign Magnúsar sjálfs; Þórður Magnússon, hróðir Magnúsar, er skip- stjóri á „Surv“ (Brim); Kristján Kristjánsson á „Arlington“; Theodór Jónsson á „Winchester“; Guðmundur Jóhannsson á „Brokline“; Axel Jóhannsson á „Lark“ (Lævirki); Jón Ásgeirsson á „Fordham“; Jóhann Ásgeirsson, bróðir Jóns, á „Boston Coll- ege“; Björgvin Einarsson á „Cambridge“; Grímur Eggertsson á „Flow“ (Flóð); óskar Gíslason á „Triton“ og Grímur Hákonarson á „Neptune“. Auk þessara islenzku skipstjóra i Boston eru Samtal við Þorlák Guðmundsson stýrimann frá Boston. nokkrir, sem ekki voru með skip, er eg fór að vestan, en eru oft með skip. Þeir eru: Ástmann Bjartmarsson, Guðlaugur Illugason, Valgeir Einarsson og Hagalín Oddsson. Allir íslenzku skipstjórarnir liafa mjög gott orð á sér og eru laldir standa mjög framarlega sem skipstjórnarmenn og aflamenn.“ — Ilafa nokkrir þessara islenzku skipstjóra al~ islenzka skipshöfn ? „Það lield eg ekki. En hjá íslenzku skipstjórun- um mörgum eru íslendingar í meirihluta; svo sigla íslenzkir sjómenn lika með öðrum skipstjór- um. Hið sama orð fer af íslenzku hásetunum og íslenzku sldpstjórunum.“ ■— Ilvað eru margir á hverjum togara? „Það er nokkuð misjafnt, en venjulegast munu vera um 16 á skipi.“ — Hvað er langt síðan íslendingar fóru að stunda íiskveiðar frá Boston? „Eg hygg að það séu nú hartnær 20 ár, eða að þeir hafi byrjað um 1920. Margir höfðu litla trú á þvi lil að byrja með, en það hefur reynst vel, íslenzku skipstjórarnir fiska í belra lagi, eins og eg hefi áður tekið fram.“ -— Ilvernig eru launakjörin? „Við fáum eklu eins gott kaup og hér, hvorki yfirmenn né undirmenn, og þó sérstaklega ekki skipstjórarnir. Á togurunum eru hlutaskifti, en auk þess er lágmarkskauptrygging, sem er miðuö við livern túr. Venjulegur túr tekur um 10 daga og eru farnir 30—36 túrar á ári, það er að fisk- veiðarnar eru slundaðar sleitulaust alll árið, að undanskildum þeim tíma, sem fer í viðgerðir á skipunum. Meðalhásetahlutur mun vera um 1800 dollarar á ári. Það er hátt kaup miðað við gang- verð dollarans nú, eða upp undir 12000 krónur, en þess ber að geta, að verð er á mörgu hærra í Ame- ríku en hér, þó að ýmislegt sé hins vegar allmiklu hærra hér nú. Eg veit dæmi til þess, að hásetar

x

Sjómaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómaðurinn
https://timarit.is/publication/714

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.