Sjómaðurinn - 01.06.1940, Síða 8
2
SJÓMAÐURINN
íslenzku skipstjórarnir í Boston bera
af öðrum skipstjórnarmönnum þar.
ORLÁKUR GUÐMUNDSSON, sonur séra Guð-
mundar í Gufudal og Rebekku Jónsdóttur,
var í heimsókn hér í maímánuði og var viðstaddur
á 75. aldursdegi móður sinnar. Hann fór aftur
vestur um haf i byrjun fyrra mánaðar, en hann
er stýrimaður á togara, sem gengur frá Boston.
Þar eru eins og kunnugt er allmargir íslenzkir
fiskimenn og eru þeir i miklum metum. Sést það
meðal annars af því, að í Boston eru um 60—70
íslendingar, þar af um 15 skipstjórár, og höfðu
12 þeirra skip, er Þorlákur fór að vestan.
Sjómaðurinn liafði tal af Þorláki áður en liann
fór vestur til atvinnu sinnar og spurði hann um
landa i Boston og af lífi þeirra og starfi. Þorlákur
sagði meðal annars:
„Okkur Islendingum, sem erum á togurunum,
sem ganga frá Boston og undirborgum hennar,
líður vel. Atvinnan er nóg, afli sæmilegur og kaup
þolanlegt. Eg hef nú stundað sjómennsku frá Bost-
on i 10 ár og mér líkar lífið vel. Iiygg eg og að hið
sama sé hægt að segja um aðra landa mína þar.“
„Hvað eru íslensku skipstjórarnir margir, sem
sigla frá Boston?
„Eg held að þið hérna heima fáið bezta hug-
mynd um það, ef eg tel upp íslenzku skipstjórana
og skip þeirra, en eg tel aðeins þá, sem höfðu skip,
þegar eg fór að vestan.
Magnús Magnússon er skipstjóri á togaranum
„Heklu“;
það er eini togarinn, sem ber íslenzkt nafn, enda
er hann eign Magnúsar sjálfs;
Þórður Magnússon, hróðir Magnúsar, er skip-
stjóri á „Surv“ (Brim);
Kristján Kristjánsson á „Arlington“;
Theodór Jónsson á „Winchester“;
Guðmundur Jóhannsson á „Brokline“;
Axel Jóhannsson á „Lark“ (Lævirki);
Jón Ásgeirsson á „Fordham“;
Jóhann Ásgeirsson, bróðir Jóns, á „Boston Coll-
ege“;
Björgvin Einarsson á „Cambridge“;
Grímur Eggertsson á „Flow“ (Flóð);
óskar Gíslason á „Triton“ og
Grímur Hákonarson á „Neptune“.
Auk þessara islenzku skipstjóra i Boston eru
Samtal við Þorlák Guðmundsson
stýrimann frá Boston.
nokkrir, sem ekki voru með skip, er eg fór að
vestan, en eru oft með skip. Þeir eru:
Ástmann Bjartmarsson,
Guðlaugur Illugason,
Valgeir Einarsson og
Hagalín Oddsson.
Allir íslenzku skipstjórarnir liafa mjög gott orð
á sér og eru laldir standa mjög framarlega sem
skipstjórnarmenn og aflamenn.“
— Ilafa nokkrir þessara islenzku skipstjóra al~
islenzka skipshöfn ?
„Það lield eg ekki. En hjá íslenzku skipstjórun-
um mörgum eru íslendingar í meirihluta; svo
sigla íslenzkir sjómenn lika með öðrum skipstjór-
um. Hið sama orð fer af íslenzku hásetunum og
íslenzku sldpstjórunum.“
■— Ilvað eru margir á hverjum togara?
„Það er nokkuð misjafnt, en venjulegast munu
vera um 16 á skipi.“
— Hvað er langt síðan íslendingar fóru að
stunda íiskveiðar frá Boston?
„Eg hygg að það séu nú hartnær 20 ár, eða
að þeir hafi byrjað um 1920. Margir höfðu litla
trú á þvi lil að byrja með, en það hefur reynst vel,
íslenzku skipstjórarnir fiska í belra lagi, eins og
eg hefi áður tekið fram.“
-— Ilvernig eru launakjörin?
„Við fáum eklu eins gott kaup og hér, hvorki
yfirmenn né undirmenn, og þó sérstaklega ekki
skipstjórarnir. Á togurunum eru hlutaskifti, en
auk þess er lágmarkskauptrygging, sem er miðuö
við livern túr. Venjulegur túr tekur um 10 daga
og eru farnir 30—36 túrar á ári, það er að fisk-
veiðarnar eru slundaðar sleitulaust alll árið, að
undanskildum þeim tíma, sem fer í viðgerðir á
skipunum. Meðalhásetahlutur mun vera um 1800
dollarar á ári. Það er hátt kaup miðað við gang-
verð dollarans nú, eða upp undir 12000 krónur, en
þess ber að geta, að verð er á mörgu hærra í Ame-
ríku en hér, þó að ýmislegt sé hins vegar allmiklu
hærra hér nú. Eg veit dæmi til þess, að hásetar