Sjómaðurinn - 01.06.1940, Blaðsíða 26

Sjómaðurinn - 01.06.1940, Blaðsíða 26
20 SJÓMAÐURINN Framfarir í hraðfrystingu : Hraðfrysting fisks og annara matvæla. Þrjár smásjármyndir um ástand fiskjarins. Nýr Hægfrystur Hraðfrystur AÐ ER LÖNG SAGA að segja frá öllum til- "*■ raunum mannkynsins til að geyma við- kvæm matvæli og vernda þau fyrir skemmdum. Það er að vísu ekki langt síðan farið var að ísa fisk til geymslu. Talið er að það hefjist nokkru fjæir 1860, þó að sjálf frystingin hefjist ekki fyr en 1898—99. Alkunn er gamla aðferðin, að frysta matvælin með því að strá salti í ís. Við það lækkar hita- slig loftsins í kælinum niður fyrir frostmark. Að- ferð Rouarts og Rappeleyes bygðist að mestu leyti á þessu. Kringum 1910 fann Henderson upp þá aðferð að nota önnur og fleiri efni en salt til að frysta með úr is og 1912 fékk Norðmaðurinn lestarbotninum, sem er úr járnbentri steinsteypu, er tveggja feta þykt einangrunarlag af korki. Eftirtektarverð er meðferð lekavatnsins og þess vatns, sem rennur úr ísnum. Alt vatn rennur niður um ristar úr lestunum og gegnum stóra pípu í botninum aftur undir vélarúm, þar sem því er dælt upp. Lestunum er skift í skilrúm með hreyfanlegum timurborðum, en þau er liægt að taka upp hvenær sem er, til sótthreinsunar. Er þess i hvívetna gætt, að fiskurinn sé meðhöndlaður eins hreinlega og föng eru á, enda sýnir reynslan, að hetra verð fæst yfirleitt fyrir hann, auk þess sem miklu minna gengur úr. Nokkur önnur félög i Boston liafa þegar hafið endurnýjun á togaraflota sínum á sama hátt og „Forty Fathoms“, sem á þessa þrjá nýju togara. Nikolai Dalil einkaleyfi á aðferð lil að senda frystan fisk i ís-köss- um. Þessi frystingaraðferð tók mikl- um breytingum, og má heita, að á liverju ári hafi hún verið endur- bætl meira að minna. En verulega gagngerð breyting varð ekki fyr en liraðfrystingin kom til sögunnar. Kemur þá lil athugunar, liver munur er á frvstum fiski og lirað- frystum. Myndin sýnir þrjár smá- sjármyndir af fiski: 1. nýjum, 2. frystum og 3. hraðfrystum. 2. mynd- in sýnir hið sama fyrirbæri og flest- ir kannast við frá hæg-frystum fiski, nefni- lega, að iskristallar myndast í vöðvunum, og má finna þá með því að þrýsta á fiskinn, en þá hrolna þeir. Þegar fiskurinn er þýddur upp, verð- ur hann lausgerðari en áður, drekkur i sig meira vatn og vöðva-vefurinn hefir truflast og aflagast. Af þessu leiðir, að þegar fiskurinn hefir verið þýddur upp, hefir hann minni mótstöðukraft gegn sýklum, skemmist og úldnar því fyr. Öðru máli er að gegna með hraðfrysta fisk- inn. Vætan hefir ekki skilið sig frá vöðvatæjun- um, meðan frystingin slóð yfir, og hefir því alt frosið jafnt, vatn og vöðvar. Því hraðari sem fryst- ingin er, því minna myndast af sjálfstæðum ís- kristöllum utan eða milli vöðvalægjanna, eða með öðrum orðum: kristallarnir verða því fleiri og smærri, sem frystingin tekur styttri tíma. Aðal- atriðið í hraðfrystingu er ekki sjálft kuldastigið, heldur það, hve hægt er á skemstum tíma að kæla fiskinn niður fyrir frostmark. Með hraðfryst- ingu hefir þetta tekist svo vel, að rakinn í fisk- inum hefir frosið þar sem hann var, meðan fisk- urinn var nýr. Fiskurinn verður eins útlits og nýr, eins á að þreifa, og sé skorið í hann, verður sárið slclt og gljáandi. Aðal-aðferðin til hraðfrystingar er frysling með sterkum kælivökva, sem ýrl er á fiskinn. Enn- frenutr eru notaðar „pönnur“, ýmist ein eða tvær, sem lokast saman. Algengustu aðferðirnar eru Rirdseye (með tveim pönnum), „Z-Pack“, þav sem fryst er með úða af kælivökva á pönnu eða grind, og loks Murphy-aðferðin, en með henni er hvert stykki fryst út af fyrir sig.

x

Sjómaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómaðurinn
https://timarit.is/publication/714

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.