Útvarpstíðindi - 03.04.1939, Side 3
Viðtal við Bjarna Böðvarsson
Því verður ekki neilað, að þrátt
fyrir töfra hinna klassisku hljóm-
leika er fátt, sem jafnast á við dans-
músikkina í því að fá hjört.u manna
til að slá dálítið örar.
Þet,ta skilja jafnvel aðrir eins al-
vörumenn og þeir, sem skipa útvarps-
ráðið, og hafa því látið útvarpið
flytja okkur heillandi dansmúsík um
hverja helgi.
Og um, aðra hvora helgi hefur
hljómsveit Bjarna Böðvarssonar lát-
ið til sín heyra í útvarpinu og aflað
sér með joví vinsælda fjölmargra
hlustenda.
'Otvarpstíðindi snéru sér til Bjarna
Böðvarssonar og fengu hjá honum
eftirfarandi upplýsingar um hljóm-
sveit hans:
Þetta er 5 manna hljómsveit, stofn-
uð fyrir 2 árum upp úr hljómsveit
F. T. H., sem var þrefalt. stærri og
þótti of dýr í rekstri. Við! höfum ver-
ið ráðnir til að leika tvisvar í mánuði
4 fyrstu mánuði þessa árs og munum
síðast koma fram í útvarpinu að
þessu sinni þ. 7. maí.
— Við höfum spilað létta nútima
dansmúsík samtímis því að við höf-
um endurvakið ýmsa gamla »hús-
ganga«, sem hefur reynzt. afar vin-
sælt. Við höfum allt af haft okkur
til aðstoðar nokkra danslagasöngvara
(»refrain-söngvara«), bæði konur og
karla, og hafa flestir textarnir ver-
ið sungnir á íslenzku. Fyrst létum við
þýða textana, en nú höfum við, eins
og yður er kunn.ugt, gert, það í sam-
bandi við títvarpstíðindi.
— Hverjir eru með yður í hljóm-
sveitinni?
Aage Lorange er píanisti, Þor-
valdur Steingrímsson fiðluleikari,
Poul Bernburg og Fritz Weisshapp-
el.
— En hverjir eru danslagasöngv-
arar?
Lára Magnúsdóttir, Helga
Weisshappel, ■ Kristín Einarsdóttir,
Ólafur Beinteinsson, Kjartan Sigur-
jó,nsson og Björgvin Jóhannsson.
— Er það þá ekkert fleira, sem
þér getið sagt mér um hljómsveit
yðar?
— Jú, vel á minnst. Fyrsta lagskrá
eftir páska verður al-íslenzk. Það er
að segja, þá verða spiluð ný og gömul
danslög eftir íslenzka höfunda.
Ég þakka svo fyrir upplýsingarnar
og kveð.
★
Útvarpstíðindi munu halda áfram
að starfa í sambandi við danshljóm-
sveit útvarpsins um að birta danslaga-
texta, því Ijóð við danslög eru vin-
sæl hjá æskunni, og oft, má heyra
»danslag kvöldsins« af vörum fólks,
bæöi í húsum og á götum úti, eftir
að hljómsveit Bjarna Böðtvarssonar
hefur látið til sín heyra í útvarpinu.
Og mörgum fullorðnum, sem hlustar
á hljomsveit hans, mun hlýna í hug,
þegar þeir heyra endurvakta ýmsa
gamla húsganga, sem þeir kannast
við frá löngu liðnum kvöldum lífs
síns.
Samkvæmt, bréfum til Útvarpstío-
inda lítur út fyrir að margir mundu
óska þess, að útvarpið sæi sér fært
að )áta danshljómsveit, leika um
hveqa helgi að vetrinum.
379