Útvarpstíðindi - 03.04.1939, Síða 9
ÚTVARPSTÍÐINDI
AUÐÆ.FI
MRMR
Þriðjudag'inn 18. apríl flyt.ur Guð-
jón Guðjónsson skólastjóri í Hafnar-
firði fyrsta erincli sitt í fyrirlestra-
flokki um auðæfi jarðar. — Hann tal-
ar að þessu sinni um gúmmíið.
Hið f.yrsta, sem getið er um J)essa
vöru, er, að spánskur maður flutti
meö sér sýnishorn af henni frá Brasi-
líu, en þar er hið upphaflega heim-
kynni gúmmítrjánna. Maðurinn flutti
þetta með sér aðeins sem skrítinn
hlut, sjálfsagt án þess að gruna að
])að ætti eftir að verða ein eftirsótt-
asta vara í heiminum. — Aldir liðu
án þess að hagnýti gúmmísins yrði
uppgötvað. Fýrst var það notað sem
strokleður. Af hreinni tilviljun upp-
götvaði maður nokkur, að hægt var
að nota það á þann hátt. Biti af
hrágúmmíi lá á borði hans og af fikti
strauk hann yfir nokkur blýantsstrik
með því, og sá, sér til mikillar unclr-
unar, að þau hu'rfu. Árið eftir voru
Nú á limum nota. menn gömmíið frá vöggu
til grafar, enda hefur það verið nefnt
>'Nauðsynlegasta vara heims.ins«.
strokleður komin í bókaverzlanir.
A.rið 1839 fannst aðferð til ao
blanda gúmmí með brennisteini.
I kringum 1840 var heimsfram-
leiðslan af gúmmí um 400 smálestir
og þótti mikið, en 1934 er hún orðin
1 miljón smálesta og síðan. hefur hún
aukizt stórum.
Ýmsar fyrstu tilraunir til að notfæra
gömmtið misheppnuðust, A myndinni sjást
mnðui' og kona, sem I sakleysi hafa sezt
á bekk og líklega setið þðtt og verið hlýtt
á milli þeirra. Gúmmíið, sem kápurnar eru
þéttaðar með, hefur ekki þolað hitann og
límzt saman, svo nú eru þau orðin bundn-
ari hvort öðru en þau ætluðust til!
385