Útvarpstíðindi - 29.04.1940, Síða 2

Útvarpstíðindi - 29.04.1940, Síða 2
Eftirfarandi saga er sögð frá sveitaþorpi einu í Rússlandi. Bakarinn í þorpinu keypti smjör hjá bónda nokkrum og greiddi það að jafnaði með brauðum. Honum fannst smjörið vera lakvegið og vóg það því í nokkra daga, og reyndist það léttara en það átti að vera. Þá brast þolinmæði bak- arans og hann kærði málið fyrir lögreglu- stjói'anum. Pyrir rannsóknardóminum spurði dómar- inn: — Þér eigið þó liklega vog? — Já, auðvitað. Ég á skálar. — Og lóð? — Nei. — Hvernig farið þér þá að vega smjör- ið? — Það er ósköp auðvelt, sagði bóndinn. Síðan bakarinn fór að kaupa hjá mér smjör, hef ég fengið brauð hjá honum, og svo hef ég pundsbrauðin hans fyrir lóð, þegar ég veg smjörið hans. Sé það ekki nákvæmt, er skuldin ekki hjá mér, heldur honum. Það var bakarinn, sem varð að greiða allan málskostnað ,og skaðabætur að auki. Fyrir stríðið hittust Englendingur, Am- eríkani og Þjóðverji á gildaskála. Talið beindist að risaskipum úthafanna, og Eng- lendingurinn sagði: — Skipstjórarnir á stærstu skipunum okkar hafa einkabifreið til þess að ferðast um stjórnpallinn. — Heyrt hefur maður nú annað eins, sagði Ameríkaninn, því að vélameistararn- ir á okkar skipum ferðast um í flugvélum, til þess að smyrja vélarnar. — Það er og, sagði Þjóðverjinn. En ÚTVARPSTÍÐINDI koma öt vikulega aC vetrinum, 28 tölubl. 16 blatSBÍCur hvert. Árgangurinn kostar kr. 5.60 til áskrifenda og greitSist fyrir- fram. 1 lausasðlu kostar heftitS 25 aura. Ritstjóri og ábyrgfSarmatSur: KRISTJÁN FRIÐRIKSSON BergstatSastr. 48 — Sfmi 5046 Útgefnndi: H/f. Hlustandinn ísafoldarpreijtsmitSja h/f. matsveinarnir á okkar skipum hafa hver um sig kafbát til þess að hræra í súpu- pottinum. Einar Sigiusson á þórsliöfn var einu sinni staddur um borð í þýzku fiskitöku- skipi á þórshöfn og var að fala sígarettur. Lítt skildi Einar ])ýzlcti og fór viðskipta- málið fram ú fingrum lieggja aðila. — Pakkinn átti að kosta 2 krónur. Einari þótti dýi't og rétti fyrst upp einn fingur. þá liristu þeir þýsku höfuðið. En Einat' hafði misst hálfan fingur, telcur því þaó ráð að rétta upp heilan fingur og stubb- inn. þetta hafði þau áhrif, að hann fékk pakkann fyrir kr. 1,50. Guðmundur Vigfússon hafnsögumaður á þórshöfn er maður findinn og segir oft skemmtileg œfintýri, sem hann ætlast ekki til að menn trúi. S. 1. sumar var hann að segja Jóansi nokkrum Albertssyni eitr. slíkt æfintýri og talaði þá nokkuð hratt. Jónasi vai'ð þá að orði: „þú mátt ekki ljúga svo hart, að ég liafi ekki við að trna þér“. Guðmundi líkaði svarið svo vel, að liann gaf karli vel í staupinu. Þegar Carl D. Tulinius foi'stjóri frétti um hertöku Danmerkur og fullveldisyfirlýs- ingu islenzku ríkisstjórnarinpar, varð hon- um að orði: „Kannske það geri gæfumun- inn, að Danir hafa nú engan hermann, en við höfum einn“. Vigíús Sigurgeirsson Ljósmyndastofa Slmi 2216 Bankastrœii 10 Reykjavlk Vinsælustu myndirnar eru nú teknar á Ijósmyndastofu vorri Mikið af fallegum landslagsmyndum. Tilvaldar tækifærisgjafir 430 ÚTVARPSTÍÐINDl

x

Útvarpstíðindi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.