Útvarpstíðindi - 29.04.1940, Síða 6
<
Aldur tónskálda og afköst.
Schubert dó 31 árs gamall, Mozart 35,
Mendelssohn 38 og' Chopin 39 ára gamall.
Hins vegar náði Bach 65 ára aldri, Handel
74, Haydn 77, Saint-Saens 86 og Verdi 87
ára aldri.
Þessi mikli munur á langlífi ofangreindra
tónskálda vekur eðlilega spurningar svip-
aðar þessum: Er nokkurt ákveðið tímabil
í æfi tónskáldanna einkennandi hvað snert-
ir hugmyndaflug og sköpun listaverka? A
hvaða tímabili æfinnar er tónskáldið af-
kastamest?
I amerískum háskólum hafa verið gerð-
ar nákvæmar rannsóknir í þá átt, að fá úr
því skorið, og eru línurit þau, sem hér eru
sýnd, árangur þeirra rannsókna.
Þar sem sum tónskáld deyja ung, en
önnur ná aðeins að vei'ða miðaldra, er aug-
ljóst að yfirgnæfandi meiri hluti allra tón-
verkanna verður til áður en tónskáldin ná
t. d. fertugsaldri. Þess vegna myndi reikn-
ingslegt aldursmeðaltal það, sem öll tón-
verk hafa verið sköpuð á, verða villandi
sem niðurstöðugrundvöllur. Ef t. d. helm-
ingi færri tónskáld eru lifandi um sextugt
heldur en um þrítugt, myndi minni fram-
leiðsla hinna eldri ekki nauðsynlega tákna,
að sköpunargáfa þeirra hafi minnkað við
aldurinn, heldur aðeins það, að færri
myndu alltaf koma undir þennan aldurs-
flokk. Til þess þess vegna að fá rétta mynd
af ,,framleiðsluskeiði“ hvers einstaks tón-
skálds yfir alla æfina, hafa rannsóknirnar
verið gerðar á öðrum grundvelli: Tekin
voru nokkur hundruð tónskáld, æfiskeiði
þeirra skipt niður í 5 ára tímabil og talin
þau mikilvæg tónverk, sem skapazt höfðu
á hverju þessara tímabila. Síðan voru tek-
in tónverk þau, sem urðu til á hverju 5 ára
aldurstímabili og þeim síðan deilt með tölu
þeirra tónskálda, er þá stóðu í mestum
blóma. Utkoman er athyglisverð og líkleg
til að vekja nokkra undrun meðal sumra
tónmenntamanna.
Eftirtektarvert er t. d., að léttar óper-
ur og söngleikir verða yfirleitt til á hærra
aldurstímabili heldur en hinar þyngri óper-
ur, sem eru alvarlegs eðlis (stór-óperur).
Eins og sjá má á línuritunum hafa þannig
38 tónskáld ýmsra þjóða, sem samið hafa
82 vinsælustu stór-óperurnar, sýnt mest
afköst á aldrinum milli 35—39 ára, en 54
tónskáld, sem samið hafa 121 hinna fræg-
ustu léttari söngleilcja, hafa sýnt mest af-
köst á aldrinum 40—44 ára.
G. P. þýddi.
i
Línurit nr. 1 á að sýna, á hvaða uldurs-
skeiðum 130 amerílcsk tónskáld hafa eink-
um samið tónverk sín.
Línurit nr. 2 á að sýna, að léttar óperur
semja menn helzt milli fertugs og fimmtugs.
En það þriðja, að klassiskar stór-óþerur
skapa menn helzt milli þrítugs og fertugs
— og kemur það sem næst því heim við það
álit sálarfræðimmr, að menn séu yfirleitt
gáfaðastir á því æfiskeiði.
434
ÚTVARPSTÍÐINDI