Útvarpstíðindi - 29.04.1940, Page 14

Útvarpstíðindi - 29.04.1940, Page 14
bóka, blaða og tímaríta, til að leita þar af sér allan grun. Þá þarf að rannsaka hand- rit, eldri og yngri, þar sem nokkur fengs- von er. Slíkt starf getur þó beðið. Prent- aðar og ritaðar heimildir geymast, og úr þeim má vinna hvenær sem vera skal. En það sem hvað mest er um vert og fyrst þarf að gerast, er að ná saman og velja úr óskráðu stökunum, svo að þær varðveitist, sem eiga það skilið. í hverri sveit mun vera til meira og minna af kveðskap, sem skap- azt hefur í önnum dagsins og aldrei er hirt um að skrifa niður. Flýtur þar oft með eitthvað af góðum stökum, sem aðeins lifa á vörum nokkurra manna, en ættu það skil- ið að bjargast frá glötun. Það yrði því ein- hver fyrsta skylda þess manns, sem tæki að sér söfnun, slíka sem hér er um rætt, að ráða sér til samstarfs vísnafróða og smekkvísa menn, í hverju einasta héraði landsins. Sæju þeir svo um söfnunina um- hverfis sig, í samráði við forstöðumann verksins. — Þetta er mál, sem miklu ræki- legar þyrfti að hreyfa við, þótt hér sé ekki rúm til að fara um það fleiri orðum. í sambandi við vísnalesturimi má og minna á annað, sem útvarpið gæti gert, og vafalaust yrði hlustendum til ánægju, ef vel tækist. Það væri að koma á föstu vísna- kvöldi, t. d. einu sinni í mánuði. Mætti hafa tilhögunina á þá leið, að fenginn væri góður maður til að sjá um þennan dag- skrárlið. Síðan væri hverjum sem vildi heimilt að senda honum stökur og kvæði. Hann veldi úr því, sem bærist og viðaði að sér öðru hæfu efni eftir föngum. Kæmi í því sambandi til mála, að lesa upp vísur ýmsra eldri hagyrbinga, sem nú eru til- tölulega fáum kunnar. Einnig væri vel við- eigandi, að lesin væru upp eitt eða tvö kvæði úr nýjum ljóðabókum, sem koma á markað, til að gefa sýnishorn af því, sem þar er á ferð. — A hinum tilteknu tímum kæmi svo vísnamaðurinn fram með það, sem hann hefur viðað að sér. Næðist um þetta góð samvinna milli útvarpsins og hinna mörgu hagyrðinga vorra, er ég ekki í neinum vafa um, að slík vísnakvöld yrðu vinsæl. Varla trúi ég heldur öðru, en að töluvert yrði sent af útvarpshæfu efni. Öllum tímaritum berst töluvert slíkra send- inga, þótt fæst þeirra séu gefin út í meira en 2—3 þús. eintökum. Hvers vegna ættu menn síður að vilja láta útvarpið flytja kveðskap sinn fyrir eyru 30—50 þús. hlust- enda? Að minnsta kosti er ekki miklu spillt, þótt tilraun verði gerð með nokkur vísna kvíld ,í svipuðum stíl og hér er lagt til. Gils. Tryggðareiðinn tókstu —. Ljóð við skozkt þjóðlag. (Nokkrar óskir hafa borizt um að þess- ar vísur yrðu birtar. Guðni Asgeirsson söng þær í útvarpið í vetur.) Tryggðaeiðinn tókstu frá mér — týndir mínum gæfusjóð, aðeins skildurðu eftir hjá mér örlaganna brunna glóð. Allar hjartans undir þrotnar, ástin köld sem hrímað g'ler, vona minna borgir brotnar, sem byggðar voru handa þér. Fyrir handan fjöllin háu finn ég liggja sporin þin, engilskæru augun bláu aftur birtast minni sýn. Ljúft er samt að lifa og dreyma og líta yfir farinn veg. Minningarnar mun ég geyma, meðan lífsins anda dreg. Guðm. Einarsson. DAGSKRÁ 1. MAÍ (Þessa dagskrá vantaði í síðasta hefti, en birtist nú hér). 20.15 Útvarpshljómsveitin: Sjá hin ung- borna tíð. 20.20 Ræða: Einar Björnsson form. verka- mannafél. Dagsbrún. 20.45 Útvarpshljómsveitin: íslenzk þjóðlög' (syrpa, 10 mín.). Alþýðulög (syrpa, 10 mín.). 21.10 Karlakórinn Fóstbræður. 21.40 Sig. Einarsson: Upplestur. 22.00 Ágrip af fréttum dagsins. Danslög. 23.00 Dagskrái'lok. — Ó, guð vors lands. 442 ÚTVARPSTÍÐINDI

x

Útvarpstíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.