Útvarpstíðindi - 21.10.1940, Side 6
Frá Vínarborg til Versala
Erindaflokkur, sem Suerrir Kristjánsson flytur.
I. Da nsinn í Vín
Síðsumars árið 1814 skunduðu 90 full-
valda þjóðhöfðing'jar og 63 landlausir furst-
ar til Vínarborgar til að taka þátt í ný-
skipan Evrópu. Eftir nær tuttugu ára þrot-
lausan ófrið virtist nú rofa í lofti, er hinn
umsvifamikli furstaskelfir álfunnar, Napó-
leon Bonaparte, var kominn á kné, og orð-
inn kotungur á Elbu. Það var látið heita
svo, að allir þeir þjóðhöfðingjar, er hefðu
tekið þátt í stríðinu, skyldu hafa hönd í
bagga um skipan málanna, en þegar til
kastanna kom, réðu hin sigursælu stórveldi
álfunnar, England, Austurríki, Rússland og
Prússland, öllu eða nær öllu, sem gerðist á
þessum þjóðhöfðingjafundi. En þótt ekki
væri greiður gangur að hinum leynilegu
ráðstefnum og baktjaldamakki stórveld-
anna, voru hinum konunglegu smælingjum
fundarins veittar nokkrar sárabætur: þeir
fengu að dansa og skemmta sér, og njóta
allrar þeirrar lífsnautnar, er hin kvikláta
höfuðborg Habsborgararíkisins gat látið í
té. Samkomulagið var þó ekki sem bezt,
umyæðurnar sóttust seint, og því var það
sagt um Vínarfundinn, að hann dansaði,
en kæmist ekki fetið. En mitt í öllum
glaumnum, undirróðrinum og átökum að
tjaldabaki var unnið sleitulaust að nýju
landakorti Evrópu, var höndlað um lönd
og lýði og pólitísk framtið álfunnar mörk-
uð næstu áratugi. Metternich, ráðgjafi
Austurríkiskeisara, markaði alla starfsemi
Vínarþingsins og varð áhrifaríkasti maður
Evrópu næstu áratugi á eftir. Þjóðir Ev-
rópu voru mjög þjáðar eftir hinar miklu
blóðtökur styrjaldaráranna, og hann kall-
aði sjálfan sig „lækninn á spítala Evrópu“.
Pólitísk stefnuskrá hans var í því fólgin
að halda Evrópu í þeim landfræðilegu og
pólitísku skorðum, er Vínarþingið hafði
sett. Hann varð málsvari hinnar pólitísku
kyrrstöðu innanlands og utan.
En söguþróuninni verður ekki haldið í
skefjum, og lögreglustjórn Metternichs laut
i lægra haldi gegn þeim öflum, er tækni
tímanna og félagsleg þróun hafði leyst úr
læðingi. Metternich varð gamall maður og
Metternich fursti, fremsti stjórnmálamað-
ur Austurrílcis, er hafði ríkust áhrif á sam-
þykktir Vínarfundarins og var fram að
1830 áhrifamesti stjórnmálamaður Evrópu.
6
ÚTVARPSTÍÐINDI