Útvarpstíðindi - 31.03.1941, Síða 6
tfmabila og um það, hvernig hin
ýmsu efni, sem myndirnar eru gerð-
ar úr, heimta sitt ákveðna tjáning-
arform.
— Ég hef heyrt, að þér munduð
halda málverkasýningu á næstunni.
Gætuð þér ekki sagt mér eitthvað
um það?
— Ekkert sérstakt, held ég. Ég
hef nú ekki sýnt sjálfstætt í nokkur
ár, svo að þetta eru allt nýjar mynd-
ir, sem þarna verða, þ. e. a. s., þær
hafa ekki sézt áður á sýningum hjá
mér. Myndirnar, sem ég sýni þarna,
eru olíumálverk og „motivin" öll tek-
in úr íslenzku sveitalífi. En auk þess
eru á sýningunni nokkrar vatnslita-
myndir eftir konuna mína.
— Hvar verður þessi sýning?
Huldukonur.
Höggmynd eftir Ásm. Sveinssón.
Jóhann Briem listmálari.
— Hún verður uppi á lofti í Safn-
húsinu — þar sem Þjóðminjasafnið
er vant að vera. Það er nú flutt
burtu í bili, sem kunnugt er, — en sá
er galli á húsnæðinu, að það er svo
þröngt, að ég kem þar ekki fyrir öllu
því, sem ég hef til að sýna.
ÚTVARP Á NORÐURLANDAMÁLUM:
Á íslenzku: — Frá London á sunnu-
dögum kl. 15.30, öldul. 19,76 m.
Á dönsku: — Frá London dagl. kl. 16,15
—16.30 á 37,3 m., á 49,6 m., á 41.5 m., og
25.3 m. Frá Radio Danmark daglega kl-
16.30 á 30.8 m.
Á norskuj — Frá London daglega kl.
17,30—17,45, á öldul. 44.9 m., 49.4 m. og
31.55.—Frá „Det uafhengie norske Radio“
dagl. kl. 18,30 á 29,8 m. — Frá Boston i
Ameríku dagl. (nema laugardaga og
sunnudaga) kl. 19.30—20.00 og kl. 22.30—
22.40 á 25.4 m.
Á sænsku: — Frá London kl. 17.15—
17.30 á öldul. 31.55.
358
ÚTVARPSTÍÐINDI