Útvarpstíðindi - 31.03.1941, Side 13
dæmi um meðferð máls og hugsunar
o. s. frv.
Oft má þetta verða til þess að opna
mönnum betri útsýn yfir kosti og
lesti í þjóðlífi og skipulagi og hjá
mannkyninu yfirleitt.
Og síðast en ekki sízt: útvarpið
gefur mönnum oft merkileg umhugs-
unarefni. O. J.
Þátturinn „Takíð undir“, þann
7. þ. m. var góður að venju. En ein-
kennilegt var það, að ekki var sung-
ið nema fyrsta erindi sumra kvæð-
anna, þar sem gera má ráð fyrir, að
fjöldi fólks um land allt kunni öll
kvæðin. Og ekki þarf að efast um, að
„forsöngvararnir" kunni þau. Stund-
um kann það að valda, að ekki eru
öll erindin sönghæf, en ekki hygg ég,
að því hafi verið til að dreifa um
kvæðin þetta kvöld, a. m. k. hef ég
oft heyrt þau öll sungin í sams konar
kórum og þjóðkórinn á að vera. Það
er ekki rétt að slíta eitt erindi þann-
ig frá heilu kvæði og syngja það
tvisvar undir sama laginu, en láta
hin erindin eiga sig. Ef tíminn leyfir
ekki, að kvæðið sé sungið allt, er
betra en ekki að syngja tvö erindi.
Til þess þarf eliki lengri tíma en að
tvítaka fyrsta erindið. — Ekki hef ég
fyrr heyrt sungið: „og hefjum upp
raddir með drengilegum söng“, en
þannig söng Páll og flest fólk hans í
þessum tíma. Ég lærði ljóðlínuna í
æsku svona: „og hefjum upp raddir
í drengilegum söng“, og þannig er
hún prentuð í Hörpu og Islenzkri
söngbók. *
Frá Hornafirði er skrifað 9.13. 19U1:
Svo illa heyrðist til útvarpsins í
vetur, að um tíma voru menn helzt
að hugsa um að loka tækjum sínum,
en nú er farið að heyrast betur, síðan
fór að lengja dag.
Mér líka títvarpstíðindi vel og
finnst blaðið bæta mikið upp útvarp-
ið, en mikill galli er, hvað það kem-
ur oftast seint — þykir gott ef ann-
hvert blað kemur í tæka tíð.
Ég myndi óska að heyra í útvarpi
eða sjá í blaðinu um nýjungar í út-
varpstækni og ekki sízt um full-
komnun á viðtækjunum, og um leið
verð þeirra. Ég hef heyrt sagt, að
tæki, sem höfð eru í bílum, fái ein-
ungis straum frá rafgeymi bílsins.
Eru ekki þau tæki hentug á bæjum,
sem hafa 6 eða 12 volta vindraf-
stöðvar? Hvað kosta þau tæki? Svör
væru æskileg í TJtvarpstíðindum.
Vinsamlegast með beztu þökk fyr-
ir Útvarpstíðindi.
Bakka í Hornafirði.
Hálfdan Arason.
Með því að fá þar til gerðan
spennubreyti, má nota öll viðtæki við
6 eða 12 volta rafgeyma, sem hlaðnir
eru frá vindalfsstöðvum. Þess má og
geta, að Viðtækjaverzlunin hefur
selt viðtæki, þar sem slíkur spennu-
breytir hefur verið innbyggður, og
geta því tengzt beint við slíka raf-
geyma.
BRÉF AÐ NORÐAN:
Hr. ritstjóri!
Yfirleitt hefur mér fallið útvarps-
efni vel í vetur, og sömuleiðis þær
nýjungar, sem þar hafa komið fram,
t. d. þátturinn: „Takið undir“, og
kaflarnir um verndun ísl. tungu.
Hvort tveggja er nokkurs konar þjóð-
ernisvakning.
Um báða þessa liði er þegar búið
að fjölyrða svo, að vel má við una.
Ég veit ekki betur, en að alls staðar
hér sé með mikilli ánægju hlustað á
þjóðkórinn, og sumstaðar tekið und-
ir, þar sem svo er liði háttað. Má
óhætt fullyrða, að þetta sé einhver
þjóðlegasti og vinsælasti dagskrár-
liðurinn, sem útvarpið hefur að
ÚTVARPSTÍÐINDI
365