Útvarpstíðindi - 06.10.1947, Síða 5
ÚTVARPSTIÐÍNDI
365
Á ferðalagi með
erlendu fólki
Ounnar Stefánsson
Undir
smásjánni
GUNNAR STEFÁNSSON starfs-
maður Ferðaskrifstofu ríkisins sagði
nýlega í ríkisútvarpinu frá kynnum
sínum af erlendum ferðamönnum,
sem hér hafa dvalið í sumar. Er-
indi þetta var hið skemmtilegasta
og prýðilega flutt, og hafa Útvarps-
tíðindi fengið það lil birtingar. —
Erindið, sem hét „Undir smásjánni“
fer hér á eftir:
„Þar eð mér segir svo hugur um,
að Islendingum yfirleitt þyki bæði
skemmtilegt og nokkur fróðleikur í
að heyra, hvert álit þeirra erlendu
ferðamanna, sem okkur sækja heim,
er, á landi okkar og þjóð, þá afréð
ég að taka saman pistla þá, er hér
fara á eftir.
Vegna atvinnu minnar hefur mér
gefizt allgott tækifæri til þess að
viða að mér noklturum fróðleik á
þessu sviði. Og þótt mér sé það fylli-
lega ljóst, að hér sé ekki um nein ný
vísindi að ræða eða að ég sé þess
megnugur að draga upp algilda reglu
um hugarfar útlendinga í okkar
garð, þá afréð ég samt að senda út-
varpinu þetta rabb mitt.
Á sumri því, sem nú er að kveðja,
hefur verið harla fátt um heimsókn-
ir útlendinga hingað, nema hvað
helzt Norðmanna í sambandi við
Snorrahátíðina, og svo hinna nor-
rænu þingmanna, er sátu hér þing
norræna þingmannasambandsins. —
Um þessar heimsóknir hefur verið
svo mikið ritað og rætt, að það væri
að bera í bakkafullan lækinn að bæta
þar nokkru við. —
Hinir norsku gestir luku yfirleitt
upp einum munni um ágæti lands og
þjóðar. Hrósuðu móttökum öllum og
viðurgerningi hér. En einn landi
þeirra, sem að vísu var ekki gestur,
heldur farandsveinn, var nú samt á
nokkuð annarri skoðun um Island
og íslendinga. Hann kom hingað í
atvinnuleit. — Einhver hafði frætt
hann á því, erlendis, að hér væri
hreinasta Gósenland, þar sem drypi
smjör af hverju strái. Hér væri hægt
að fá næga atvinnu og það fyrirtaks
atvinnu, jafnvel embætti hjá ríkinu,
feiknalaun, en þó gæti maður tekið
það eins rólega og manni sjálfum