Útvarpstíðindi - 06.10.1947, Qupperneq 9

Útvarpstíðindi - 06.10.1947, Qupperneq 9
ÚTVARPSTÍÐINDI 369 það mál hef ég ekki heyrt talað síð- an einhvern tíma á árinu 1939 eða 40. Vel gat það svo sem verið, að maðurinn væri Hollendingur. Þó hafði mér nú fundizt hollenzkan all- frábrugðin þessu, enda var ekki um það að villast, að maðurinn var Þjóð- verji. Nei, því miður höfðum við ekki póstkort til sölu, en hér væri bókabúð á næstu grösum, sem eflaust seldi póstkort, og úr því að hann bað mig nú líka að vísa sér á pósthúsið, þá var víst bezt að fara með hann út til Sigfúsar Eymundssonar. Það er ekki löng leið yfir Lækjar- torg og eftir spotta af Austurstræti, en á þeirri stuttu leið sannfærðist ég um það, að margt getum við þakkað forsjóninni fyrir, samanborið við sumar aðrar þjóðir. — „Drottinn minn dýri“, sagði hann, „hvað ykk- ur hlýtur að líða vel. Nóg að bíta og brenna. Allt yfirfullt af mat og fatn- aði“. Við hlytum að vera hamingju- söm og ánægð þjóð, hjá því gæti ekki farið. Enda bærum við þess vitni. Og ekki hefði velmegunin gjört okkur að verri mönnum, síður en svo. Fyrir hádegið sagðist hann, ásamt nokkr- um félögum sínum, hafa ekið í leigu- bíl um bæinn, í nauðsynlegum er- indagjörðum. Meðal annars höfðu þeir numið staðar fyrir utan kjötbúð í Hafnarstræti. Allt fljótandi í mat. Ilver maður gat keypt eins og hann vildi, hefði hann peninga. Og allir virtust hafa nóg af peningum. Hann hefði, svona í’étt til þess að segja eitthvað, orðað það við bílstjórann, að ekki væri nú amalegt að geta keypt sér kjötbein að nazla svona til hátíðabrigða frá blessaðri soðning- unni, sem héldi þó í þeim líftórunni. „En hvað haldið þér að bílstjórinn hafi gjört, á meðan að við skruppum upp á skrifstofu þarna í húsinu? Hann kaupir heilan lambsskrokk í kjötbúðinni og gefur okkur, þegar við komum út. Og ekki nóg með það, heldur fullan poka af kartöflum að auki“. Hann andvarpaði þungan. — „Blessaða, dásamlega þjóð“, bætti hann við, um leið og hann borgaði eitt póstkort með tveggja krónu pen- ingnum. „Þetta verður nú allt og sumt, sem ég kaupi í landi að þessu sinni“, hélt hann áfram, „en vonandi verður það betra næst. Það batnar strax, ef við getum komið mánaðar- skammti hvers manns heima af fiski upp í eitt kíló, núna er hann ekki nema 428 grömm, ekki heilt pund. En það verður erfitt með þessum fjárans ryðkláfum, sem við höfum yfir að ráða núna. Ég var einn af útgerðarstjórum öflugs skipafélags heima fyrir stríðið. Fyrir liðugum tveimur mánuðum síðan fór ég með síðasta skip félagsins yfir til Eng- lands til afhendingar. Mann svíður svona innvortis, skal ég segja yður, vinur minn, en allt hefst þetta samt. Skipin ykkar eru glæsileg. Það væri einhver munur að sigla slíkum fleyt- um. Þið verðskuldið þau líka. Dá- samlega þjóð. Ég vildi að ég mætti eiga hér heima til æviloka. — Auf Wiedersehen, vinur minn“. Og um leið og hann kveður mig, ber hann höndina, að hermannasið, upp að enninu og réttir ósjálfrátt úr sér. Allt í einu er eins og hann taki sig á, læðir hendinni hálf vesaldarlega upp að kollmiðjunni á húfunni sinni, tek- ur hana ofan og brosir vandræða- lega, eins og hann sé að biðja af- sökunar. Ég kenni í brjósti um þenn- an státna, en þó rótlausa, unga

x

Útvarpstíðindi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.