Útvarpstíðindi - 06.10.1947, Síða 12
372
ÚTVARPSTIÐINDI
Verkfræðingur á villigötum
Álitið stórt og höfðings hátt
hræðast skyldir þú ekki,
sannleikans gæta ætíð átt
engin kjassmál þig blekki.
Ærugirnd Ijót, hofmóóug hót
hæfir sízt yfirmönnum
dramblátum þar, þú gef andsvar,
þó byggt á rölcum sönnum.
Hallgr. Pétursson.
Þetta erindi Hallgríms Pétursson-
ar kom í hug mér er ég las grein
Gunnlaugs Briem í seinasta hefti Út-
varpstíðinda.
Verkfræðingurinn reynir í þessari
grein sinni að gera lítið úr tækni-
kunnáttu minni. Ég skal fúslega
játa, að hún er ekki mikil. Þó vænti
ég þess, að verkfræðingurinn minn-
ist þess, að við höfum eitt sinn ræðst
við um smábreytingu, sem ég óskaði
eftir að gerð yrði í þularstofu. Breyt-
ing þessi var til mikils hagræðis og
jók mjög öryggi, en sparaði hins
vegar magnaravörðum talsverða
vinnu. Samt gat verkfræðingurinn
ekki fallizt á að þetta yrði gert, kvað
það „tekniskt ómögulegt", og sagði,
að það yrði að bíða þar til Útvarpið
flytti í ný húsakynni. Fyrirrennarar
mínir höfðu í 15 ár reynt að fá þessu
til leiðar komið. Loks tók einn magn-
aravörðurinn að sér að framkvæma
þessa breytingu í fjarvist verkfræð-
ingsins. Það tók hann 15 mínútur.
Mér dettur ekki í hug að efast um
tæknikunnáttu G. Briem. Þvert á
Pétur
Pétursson
móti veit ég, að hann er talinn mjög
fær í sinni grein. Hitt dreg ég hins
vegar mjög í efa, hvort Útvarpið
verður hennar aðnjótandi sem skyldi.
Veit ég ekki hvort þar kemur til
meðfædd afturhaldssemi eða tíma-
skortur.
Verkfræðingurinn segir í grein
sinni: „Það er ekki vani minn, að
grípa ótilkvaddur inn í hin daglegu
störf magnaravarða“.
Það var og!!
Ég hygg, að lesendur Útvarpstíð-
inda hafi veitt athygli auglýsingu,
sem birtzt hefur í mörgum heftum
þess. Þar segir: „Verkfræðingur hef-
ur á hendi daglegt eftirlit með magn-
arasal, útvarpsstöð og viðgerðar-
stofu“. Hvernig kemur þetta heim
við fullyrðingu verkfræðingsins um
að hann grípi ekki ótilkvaddur inn í
hin daglegu störf magnaravarða. Ber
kannske að skilja þetta svo, að „dag-
lega eftirlitið" sé eins konar himn-
esk handleiðsla eða guðdómlegt
gæzlustarf. — Er verkfræðingnum
mögulegt að fylgjast með störfum
undirmanna sinna, án þess þó að
koma á vinnustaðinn, segjum t. d.
einu sinni í mánuði. Eða kannske
tæknin í verkfræðideild Útvarpsins
sé komin á svo hátt stig, að verk-
fræðingurinn geti tekið undir með
þeim sem sagði: „Sjá, ég er með yð-
ur alla daga“, og fylgzt með störf-