Útvarpstíðindi - 06.10.1947, Page 14

Útvarpstíðindi - 06.10.1947, Page 14
374 ÚTVARPSTÍÐINDI erlendum blöðum og tímaritum, eða viti, að þeir séu til annars staðar. Þjóðin á nóg af „myndabókaverk- fræðingum". Hún þarfnast starf- hæfra og framsækinna manna, sem ekki vilja láta okkar hlut verða minni en annarra. Hinir geta fengið sér „mekkanó“ og dundað við það óáreittir. Hitt er of dýrt, að láta þá hafa á hendi stjórn almannafyrir- tækja. Að síðustu skal vikið nokkuð að kveinstöfum verkfræðingsins um gjaldeyrisörðugleika. Hann segir, að fá megi fullkomin upptökutæki fyrir 30 þús. kr., en telur, að „Ríkisút- varpið hafi um langt skeið átt mjög örðugt með að fá innflutning nauð- synlegasta rekstrarefnis". Ég skora á verkfræðinginn að leggja fram gögn til sönnunar þess- ari staðhæfingu. — Vill verkfræð- ingurinn birta skrá yfir þau leyfi, sem Útvarpinu hafa verið veitt á undanförnum árum, og sömuleiðis skrá yfir þær umsóknir, sem synjað hefur verið. Það gæti verið nógu fróðlegt fyrir útvarpsnotendur. Það kann að vera, að nú á sein- ustu mánuðum hafi reynzt erfitt að fá leyfi. En hitt veit ég, að Útvarpið virðist hafa átt miklum velvilja að fagna hjá Viðskiptaráði. T. d. fékk það leyfi fyrir yfirfærzlu á 45 þús. dollurum til greiðslu á teikningu á fyrirhuguðu útvarpshúsi; og nú í ár, eftir að mjög var farið að ganga á gjaldeyriseign landsmanna, fekk það leyfi fyrir fiðlu frá Bretlandi. Fiðl- an kostaði þar 75 þús. kr. („af rauðu gulli eru strengirnir snúnir"). Ekki er þó ljóst, hverjum fiðla þessi er ætluð, því að skömmu eftir að hún kom til landsins, var hún send í „Vesturveg“. Aldrei mun aðalfiðlu- leikari útvarpsins hafa séð hana, né heldur aðrir fiðlarar þess, þó þá fýsti þess mjög, og má því segja um þá, eins og Fiðlu-Björn kvað, að þeir séu „mæddir í raunum sínum“. Að lokum þetta: Briem telur þessa „stálþráðardeilu" ómerkilega. Það kann að vera rétt. Mér er fullljóst, að eitt smátæki er ekki allra meina bót. Hins vegar var þetta prófsteinn á umbótaviðleitni hans og áhuga um fjölbreytni í dagskrá útvarpsins. — Hann féll á þessu prófi. Stóð gegn því, að hægt væri að notfæra sér tæki (þó ófullkomið væri) til þess að færa hlustendum margs konar skemmtan og fróðleik. Hann sá ekki um, að keypt væru fullkomin upp- tökutæki, þótt hann vissi að þau væru fáanleg. Nú boðar hann margs konar og alvarlegar rekstrartruflan- ir í náinni framtíð. Nú kemur til kasta hlustendanná, að njóta vel hinnar glæsilegu fram- tíðar: Rekstrartruflanir vegna skorts á efni til endurnýjunar, 300 þúsund króna teikning af húsi, sem verður sennilega aldrei reist, auk reisu- kostnaðar, 100—200 þús. kr., 75 þús- und króna fiðla í annari heimsálfu, há afnotagjöld, síversnandi útvarps- dagskrá o. s. frv. Látið nú fara vel um ykkur, góðir hálsar, og njótið þess vel, sem að ykkur er rétt. Pétur Péturssor

x

Útvarpstíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.