Útvarpstíðindi - 06.10.1947, Síða 16

Útvarpstíðindi - 06.10.1947, Síða 16
376 ÚTV ARPSTf f)TNDI TTEYRT OG SÉÐ. Pá segir Sveinn Stefánsson um þáttinn „Heyrt og séð“: „Annars fannst mér er- indi Gunnars vel geta failið inn í þáttinn „Heyrt og séð“, því að efni þess var al- veg éins og tekið er i þann þátt. Annars segi ég þetta ekki vegna þess að mér þyki Jónas Árnason ekki góður. Hann er mjðg sæmilegur, en misjafn, og við því er ekkert að segja. Jónas Árnason hefur glöggt auga; stundum kemur hann með áróður; en hverjir gera það ekki, og við útvarpshlustendur erum alveg einfærir um að moða úr. Það er alveg misskiln- ingur, að við getum það ekki. Pað er hara meira gaman að því þegar menn tala út úr pokahorninu. Peir, sem signt og heilagt eru að reyna að ségja' ékki neitt, sem geti ef til vill móðgað ein- hverja, verða sjálfir alveg bragðlausir og leiðinlegir. Peir verða sjálfir leiðir á því og við líka leiðir á þeim“. UM DAGINN OG VEGINN segir Sveinn ennfremur; „Mér þykir sem þátturinn „Um daginn og veginn” hafi heldur sett ofan. Sá liáttur hefur nú verið tekinn upp að fá marga menn til að koma fram í honum, og efast ég stór- lega um, að það sé til bóta. Mín reynsla er sú, að beztir séu fastir þættir, þegar sami maður semur þá og flytur um lang- an tíma. Það er 'eins og menn eigi þá betra með að samlagast efninu og ná valdi yfir því. Annárs hafa mörg ágæt erindi verið flutt í þcssum þætti undan- farna mánuði, þó að misjöfn hafi þau verið. Mér likar til dæmis mjög vel við séra Jakob Jónsson, eins þótti mér gott erindi Jóhanns Hafstein á mánudags- kvöldið. Ég sakna þó þeirra þriggja mest Sigurðar Rjarnasonar, Vilhjálms Vil- hjálmssonar og Gunnars Ren. Þeir bættu hvern annan upp á ákjósanlegan hátt, og voru skemmtilega ólíkir“. HVAÐA TUNGUMÁL? Hundavinur skrifar þetta bréf: „Sið- astliðinn sunnudag flutti Jónas Árnason nokkuð sniðugt erindi í þætti sínum um heimsókn, sem hann hafði heiðrað hihn margumtala Keflavíkurflugvöll með. Jón- as sá hund, og hann sá fleiri hunda, og svo sá hann kirkju í bragga, að því sem hann sagði frá. Það var á Jónasi að heyra, að hann væri eitthvað óánægður með þessa heimsókn. Sérstaklega kvart- aði hann sárann undan ókurteisi hund- anna, sem liann hitti. Sagði hann, að þeir hefðu ekki skilið sig, hversu blíð- lega sem hann ávarpaði þá. Hins vegar hefði ekki borið á öðru en að hundarnir skildu ameriska pilta, sem þarna voru. Ég held, að Jónas hafi ekki gætt sín nóg, er hann talaði við þéssa íslenzku hunda. Mér skildist á honum, að hann hefði mælt til þeirra á íslenzku, en mér var að detta í hug, hvort Jónas hefði ekki í ógáti mælt á einhverju öðru tungumáli við hundana, sem þeir þá ekki hafa skil- ið boffs í, enda kunnugt, að lítil rækt hefur vcrið lögð við það að kenna ís- lenzkum hundum annarleg tnngumál. — Svo virðist, sem Jónas hafi verið í úrillu skapi þarna á flugvellinum, en þegar svo er ’ástatt um mcnn, hættir þeiin til að láta fjúka og gæta ekki nógu vel að því sem þeir segja. Ég held þvi, að Jónas hafi farið eins, að hann hafi gleymt móðurmáli sínu og hundanna okkar á vellinum og ávarpað þá á tungúmáli, sem þeir skildu ekki neitt í, já, jafnvel verr en ainerískuna, sem þeir eru búnir að hafa fyrir eyruin mörg undanfarin ár. — Annars skemmti ég mér vel við þetta erindi Jónasar Árnasonar. Það er hægt að tala skemfntilega um lítið efni, bara ef mennirnir sem það gera eru skemmti- legir. Og Jónas Árnason er skemmtilegur, jafnvel þó áð hann sé reiður út í hunda og sé að skamma l>á. — Segðu okkur nú sögu næst um fressketti, Jónás minn. Það hlýtur að vera hægt að tala skémmtilega við þá. Ég trúi ekki öðru en þú kunnir eitthvert tungumál, sem þeir skilja“.

x

Útvarpstíðindi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.