Útvarpstíðindi - 06.10.1947, Page 22
382
ÚTVARPSTÍÐINDI
Bækur; sem koma næstu daga
1. STRANDAMANNABÓK, eftir Pétur Jónsson frá Stökkum. —
Guðni Jónsson bjó undir prentun. í þessari bók eru, auk héraða-
lýsinga, margar merkar frásagnir, svo sem um sjómannalíf á
Gjögri á 19. öld, Svaðilfarir í leguferðum, Hákarlaveiðar í hafís
og margt fleira.
2. SÖGUR ISAFOLDAR. I gamla sögusafni ísafoldar, Iðunni gömlu
og víðar, eru margar ágætar sögur, sem Björn heitinn Jónsson
ritstjóri og síðar ráðherra þýddi. Auk þess birtist eitt bezta safn-
ið af íslenzkum sagnaþáttum neðanmáls í ísafold. Úrval þessarra
þýðinga og íslenzku sagnaþættirnir allir munu nú koma út í
tveimur eða þremur bindum, og kemur fyrsta bindið næstu daga.
Sigurður Nordal hefur valið í útgáfuna, en Ásgeir Blöndal Magn-
ússon búið undir prentun.
3. ÚR BYGGÐUM BORGARFJARÐAR. Kristleifur Þorsteinsson
fræðimaður á Kroppi í Borgarfirði, sendir næstu daga á bóka-
markaðinn annað bindi af greinum sínum og ritgerðum Úr byggð-
um Borgarfjarðar. Fyrra bindinu var svo vel tekið, að þrotlaus
eftirspurn hefur síðan verið eftir framhaldinu.
4. DALALlF. Ein þeirra bóka, sem mesta athygli vakti á síðasta
ári og hlaut bezta dóma almennings, var Dalalíf, eftir skagfirzku
skáldkonuna Guðrúnu frá Lundi. — Síðari hluti bókarinnar er
nú í prentun og kemur eftir fáa daga.
5. VIRKIÐ í NORÐRI. Síðastliðið vor kom út fyrri hluti bókar-
innar „Virkið í norðri“, hernámssaga íslands, eftir Gunnar M.
Magnúss. Bókin vakti milda athygli og umtal og seldist mjög vel.
í bókinni er mesti sægur af myndum frá hernámsárunum, og
hafa allmiklar umræður orðið um sumar þessara mynda, sem eru
af skemmtanalífi hermanna og landsmanna. Síðara bindi bókar-
innar kemur í þessum eða næsta mánuði.
6. MANNBÆTUR. Steingrímur Arason kennari er einn af okkar
beztu mönnum. Hann hefur samið og þýtt margar bækur handa
íslenzkum börnum, og allar náð mikilli hylli. f haust kemur út
eftir hann mikil og merk bók, sem heitir Mannbætur. Hún á er-
indi til allrar þjóðarinnar.
BókaverzLun IsafoLdar