Útvarpstíðindi - 06.10.1947, Qupperneq 24

Útvarpstíðindi - 06.10.1947, Qupperneq 24
384 ÚTVARPSTÍÐINDI Ólína Jónasdóttir skáldkona sendi okk- ur þessar vísur fyrir nolckru: HAUSTVÍSA: Haustið bitran herðir róm, lilíð og fitin sölnar, skortir hita blað og blóm, breytir lit og fölnar. LOFSÖNGUR TIL HELGA HJÖRVAR: Þreyta dags úr huga hörfar, held ég út á gömul mið, þegar rómur Helga Hjörvar hljómar gegnum útvarpið. Frásögn hans minn huga örfar, hún er oft af töfrum full. Sálin í þér, Helgi Iljörvar, hlýtur að vera kostagull. Ellin vonir niður njörfar, neitar þrátt um bros og yl. Sœla væri að sjá þig, Hjörvar, samt er það mesta hættuspil. EKKI ER VIST AÐ VERÐI BER . .. Nýlega var birt vísa í Sindri, sem sögð var eftir reykvískan verkamann, og var uppliaf hennar: „Ekki er víst að verði ber“. — Vísa þessi er eftir Jón skáld á Arnarvatni, og er hún í Ijóðabók lians. LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER. (Fyrsti vetrardagur). 20.30 Kvöldvaka. a) Hugvekja. b) Erindi. c) Upplestur. d) Dómkirlcjukórinn syngur þjóð- lög o. fl. (Páll Isólfsson stjórnar). 22.05 Danshljómsveit Bjarna Böðvars- sonar. Danslög. 24.00 Dagskrárlok. HVERS VEGNA DRAKK HANN? — Viltu ekki hætta að drekka mín vegna? spurði eiginkonan drykkfeldan eiginmann sinn. Hver segir, að ég drekki þín vegna? svar- aði maðurinn snúðuglega. Umt'æðuB' uua úivarpið Framhald af bls. 864. sérþekltingu og helzt mikla æfingu. Enginn, eða þá sárafáir, byrjendur í blaðamennsku í Reykjavík munu hafa svo lág laun. Laun þeirra, sem fengnir eru til að flytja erindi, eru og svo smánarlega lítil, að enginn gerir það þeirra vegna. Snorri Sigfússon minntist síðan á ýmsar umbætur og nýjungar, sem hann teldi rétt að gera á dagskránni. Hann hvatti til þess, að tekin væru upp 5—10 mínútna erindi, að tveir barnatímar yrði hafðir á viku, og að sérstök áherzla væri lögð á það, að lesa upp og segja frá í barnatímum sögulegum fróðleik, baráttu forfeðra okkar við náttúruna o. s. frv. Þessar tillögur eru allar mjög athyglisverð- ar, og verða vonandi teknar til yfir- vegunar hjá útvarpsráði. — Er full ástæða til að þakka Snorra Sigfús- syni fyrir hið ágæta erindi hans, en æskja jafnframt eftir því, að fleiri góðir menn láti til sín heyra um þessi mál í útvarpinu, eða í Útvarpstíð- indum. Mun erindi Snorra Sigfús- sonar að líkindum birtast í næsta blaði. Yfirleitt taka útvarpshlustendur of lítinn þátt í umræðum um útvarpið, stjórn þess, efnið, sem það flytur, og hvernig það er flutt. Þeir geta því sjálfum sér um kennt að nokkru leyti, ef þeim þykir eitthvað miður fara.

x

Útvarpstíðindi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.