Viðar - 01.01.1937, Blaðsíða 120
[Viðar
Reykjanesskóli 1934—1937.
Eftir Aðalstein Eiríksson.
Reykjanesskóli hlaut á síðasta alþingi héraðsskólarétt-
indi, með þeirri undanþágu, að árlegur námstími þurfi
ekki að vera nema þrír mánuðir, um næstu 5 ár. Þessi
yngsti héraðsskóli hefir orðið margháttaðrar vináttu að-
njótandi og eitt af því er það, að ritstjóri „Viðars“ hefir
boðið okkur rúm í héraðsskólaritinu, til að skýra frá
starfi Reykjanesskóla og ýmsum fyrirætlunum í sam-
bandi við hann. Skólinn hefur aðeins starfað í þrjú ár,
og þess ekki að vænta, að frá mörgu sé að segja. Þessi
þriggja ára saga, verður einkum sagan um það, hvernig
skólinn smátt og smátt vex upp í það, að verða héraðs-
skóli. En einmitt sá hluti úr sögu hvers skóla — undir-
búningsárin — mun ætíð verða einn merkasti þátturinn.
Þá eru hornsteinar lagðir, form og fyrirkomulag bygg-
inga, sem skólinn óhjákvæmilega verður að búa að um
langan aldur, ákveðið. Þá er það ekki minna um vert, að á
þeim árum, hvað helzt, markast skýrast afstaða skólans
til fólksins í umhverfi hans, en það er grundvöllur skóla-
starfsins. Eftirfarandi þættir mynda að vísu enga heild-
arsögu, en ég hygg, að það megi lesa milli línanna, að
fólkið, sem stendur að þessum skóla, stendur þar heilt
og óskipt. Það hefur látið þennan skóla verða til og það
mun einnig standa saman um að bæta skilyrði hans til
félagslegra menningarstarfa í héraðinu. Okkur er það
ómetanlegt, að geta stuðst við reynslu hinna eldri hér-
aðsskóla og þökkum vináttu og árnaðaróskir starfsfélaga
okkar.