Starfsmannablað Reykjavíkur - 01.03.1939, Page 5
STARFSMANNABLAÐ
REYKJAVIKUR
ÚTGEFANDI:
STARFSMANNAFÉLAG REYKJAVÍKURBÆJAR
II. árg. MARZ 1939 1. tbl.
LAUSN LAUNAMÁLSINS.
I fyrsta tölublaði þessa blaðs segir
frá gangi launamálsins. Var sú saga
rakin frá því, að málinu var fyrst hreyft
á aðalfundi Starfsmannafélags Reykja-
víkurbæjar 27. febr. 1935 og fram á
síðastliðið sumar. Var þá margur mað-
urinn orðinn langeygur eftir nýrri skip-
an launamála bæjarins í fyllra samræmi
við kröfur tímans en launasamþykktin
frá 1919 var orðin, og með tilliti til sí-
vaxandi dýrtíðar kreppuáranna.
Síðan hefir langur tími liðið fram —
langur tími í augum alls þorra starfs-
manna bæjarins. Að vísu verður tíminn
aðeins talinn í mánuðum, en í hverjum
mánuði var talið víst, að lausn launa-
málsins stæði fyrir dyrum. Eftirvænt-
ingin var mikil og miklar sögur og hinar
ótrúlegustu gengu af meðferð málsins
manna á milli. Öllum var ljóst, að það
var aðkallandi nauðsyn að leysa launa-
málið á tímabærum grundvelli. Starfs-
mönnum bæjarins var þetta ljóst, og
engu síður ráðamönnum bæjarins.
Nú þegar fyrsta skrefið er stigið til
lausnar á launamálinu með frumvarpi
að „Samþykkt um laun starfsmanna
Reykjavíkurkaupstaðar", sem liggur
fyrir bæjarstjórn, er áreiðanlega fargi
létt af öllum þeim, sem undanfarna mán-
uði biðu afdrifa launamálsins. Hvemig
svo sem mönnum kann að geðjast að
sjálfri samþykktinni, þá geta menn fall-
ist á það, að með henni er stigið þýðing-
armikið spor í rétta átt, og að sá vilji,
sem þar ríkir til fyllra samræmis og
hækkunar, er lofsverður. En framhjá
hinu verður heldur ekki gengið, að
samþykktin er aðeins hálf lausn máls-
ins, sem ekki verður endanlega leyst
fyrr en fullkomin reglugjörð um laun
og starfskjör starfsmanna bæjarins hef-
ir náð fram að ganga.
Frumvarpið er birt hér í blaðinu eins
og launanefnd bæjarstjórnar lagði það
fyrir bæjarstjórn, en jafnframt því,
álit launanefndar St. R., staðfest af
stjórn félagsins. Eins og fram kemur í
álitinu, hafði launanefnd St. R. ónógan
tíma til að gagnrýna frumvarpið. Bréf
launanefndar bæjarstjórnar er dagsett
10. marz, en álitið 14. marz. Varð launa-
jíí ■ ■; 77i.;