Starfsmannablað Reykjavíkur - 01.03.1939, Síða 9
STARFSMANNABLAÐ REYKJAVlKUR
5
Lögreglumenn, slökkviliðsmenn, hafn-
sögumenn, vélamenn á hafnsögubát,
vatnsmenn við höfn og heilbrigðisfull-
trúi. Bæjargjaldkeri og gjaldkerar Raf-
magnsveitu og Hafnar skulu árlega fá
kr. 1000,00 í mistalningsfé hver. Bæj-
arráð setur reglur um bifreiðahalda
starfsmanna bæjarins, sem kostað er af
honum.
8. gr.
Bæjarráð eða eftir atvikum hafnar-
stjórn setja reglur um starfstíma í
hverri starfsgrein, og skal hann miðast
við sex daga vinnuviku. Enginn fastur
starfsmaður bæjarins hefir rétt til auka-
greiðslu fyrir eftirvinnu, helgidaga-
vinnu né næturvinnu. 1 þeim starfs-
greinum, þar sem slík vinna er óhjá-
kvæmileg, greiðist hún ekki aukalega,
né neinar uppbætur fyrir hana, enda fái
þeir starfsmenn frí á öðrum tímum, sem
því svarar, og eftir þeim reglum, er þar
um gilda eða settar kunna að verða.
Allir fastir starfsmenn hafa rétt og
skyldu til sumarleyfa, eftir reglum, sem
gilda um þau á hverjum tíma. Starfs-
ttienn geta aldrei fengið kaupgreiðslur
í stað sumarleyfa.
Álit launanefndar St. R.
Reykjavík, 14. marz 1939.
Vér höfum móttekið bréf yðar, dags.
10. þ. m., ásamt frumvarpi að „Sam-
Þykkt um laun starfsmanna Reykjavík-
urkaupstaðar". Þar sem oss skilst, að
frumvarp yðar muni vera endanleg til-
laga launanefndar bæjarins, áður en
uiálið fer til aðgjörða bæjarstjórnarinn-
ar, en þér biðjið um álit vort á tillög-
unni hið skjótasta, verðum vér að taka
það fram, að það álit, sem vér látum
hér í ljósi, markast nokkuð af því, hve
skamman tíma vér höfum haft til at-
hugunar á nefndum tillögum. Þar sem
það hrekkur ekki til, vísast til fyrri að-
stöðu vorrar í bréfum og í breytingar-
tillögum vorum við frumvarp að launa-
reglugjörð fyrir starfsmenn bæjarins,
að svo miklu leyti sem tillögurnar hafa
ekki tekið breytingum frá þeim tillög-
um vorum.
Þó að vér álítum, að launahækkanir
þær, sem fram koma í launakerfinu, séu
ekki fullnægjandi og nái ekki þeirri lág-
markskröfu til launahækkana, sem upp-
haflega var gerð af starfsmönnum bæj-
arins, þá teljum vér að launakerfið sé
þó, með þeirri launahækkun og sam-
rýmingu launa, sem þar er, verulega til
bóta fyrir starfsmennina í heild, og
einkum ef verðlagsvísitalan yrði fram-
vegis látin ráða hækkunum og lækkun-
um launa.
Þar sem launakerfið skerðir verulega
núverandi launagreiðslur til einstakra
manna og sumpart starfshópa, verðum
vér að óska, að því verði kipt í lag,
annað hvort með persónulegum launa-
uppbótum eða tilfærslu í launakerfinu,
sem sumsstaðar virðast vera mjög eðh-
legar miðað við önnur störf í flokkun-
inni. Á þetta einkanlega við störf í IV.
flokki, sem áður hefir verið getið um
og lagt til að færð yrði upp í III. flokk,
svo og 1. flokks rafvirkja, sem færðir
hafa verið niður um 2 flokka frá fyrri
tillögu yðar, og að nokkru um vakt-
stjóra lögreglu.
Þar sem þér í bréfi yðar takið það
skýrt fram, að samþykkt tillögu yðar
sé aðeins fyrri hluti endanlegrar sam-
þykktar á launareglugjörð fyrir starfs-
menn bæjarins, en sjálf launareglu-
gjörðin liggur ekki fyrir á þessu stigi
málsins, teljum vér óaðgengilegt fyrir