Starfsmannablað Reykjavíkur - 01.03.1939, Page 10
6
STARFSMANNABLAÐ REYKJAVlKUR
starfsmenn bæjarins að játast undir
ákvæði 8. gr. frumvarps yðar, og leggj-
um til að frestað verði að taka ákvörð-
un um ákvæði 8. greinar, og ákvæði
hennar um starfstíma, aukagreiðslur
fyrir eftirvinnu og lengd sumarleyfa
verði tekin til endanlegrar athugunar í
sambandi við sjálfa launareglugjörðina.
Skilst oss, að það geti ekki haft áhrif á
launakerfið, þar sem ýmist liggja fyrir
bæjarráðssamþykktir um greinaratrið-
in, eða þau eru bundin við hefð, sem
oss virðist eðlilegast að halda, þangað
til sjálf launareglugjörðin liggur fyrir.
Þá viljum vér benda á, að inn í launa-
kerfið vantar ýms störf, og eru þessi
hin helztu: Forstöðumaður manntals-
skrifstofu, hagfræðingur, aðstoðarbóka-
vörður við Bæjarbókasafn, forstöðu-
kona Farsóttahúss ög skólahjúkrunar-
kona, en tannlæknar barnaskólanna
hafa verið felldir niður í núverandi
frumvarpi yðar frá hinu fyrra.
Álit vort á niðurröðuninni í launa-
kerfinu er í skjótu bragði það, að störf-
in hafi yfirleitt heldur lækkað í flokk-
uninni frá síðustu flokkun. Er oss í
þessu sambandi ekki ljóst, hversvegna
bókarar og skrifarar eru í tveimur
flokkum, og 1. flokks rafvirkjar og
hliðstæð störf, svo sem lagningamenn,
hafa verið færðir niður um heila tvo
flokka. Þá er í V. flokki 1. vélstjóri (á
Magna?) settur við hlið vélamanna
(mótorista?) á hafnsögubát, en þeir
aftur einum flokki ofar en vélstjórar.
I VI. flokki er húsasmíðameistari sett-
ur við hlið verkstjóra í trésmíði, en báð-
ir flokki neðar en verkstjóri í járnsmíði.
Þá er og ritari (bókari) verkfræðideild-
ar hjá Rafmagnsveitunni settur flokki
ofar en aðrir bókarar, en 1. flokks skrif-
arar í VIII. flokk og þar við hlið 1.
flokks innheimtumanna. Nú mun 1.
flokks innheimtumaður varla geta orð-
ið 1. flokks skrifari við starfsbreytingu,
og myndi þá innheimtumaður, sem tek-
inn væri til skrifarastarfa, lækka í laun-
um. Að þessu athuguðu vildum vér
leggja til, að bókarar og skrifarar verði
fluttir upp um einn flokk, en ef nauð-
syn þykir, þá komi 3. flokks skrifarar
í IX. launaflokk og gætu 1. flokks kven-
skrifarar að einhverju leyti heyrt undir
þann flokk. Sömuleiðis að 1. flokks raf-
virkjar og hliðstæð störf, verði færðir
upp um flokk, en 2. flokks rafvirkjum
bætt við, ef nauðsyn þykir.
Loks bendum vér á, að meðan launa-
reglugjörð liggur ekki fyrir með ákvæð-
um um rétt og skyldur starfsmanna,
teljum vér ekki nægilega ljóst orðalag
3. gr. frumvarpsins, er ákveður að sett-
ir starfsmenn fái aðeins greidda %
hluta af byrjunarlaunum. Eins virðist
oss orðalag greinarinnar óglöggt, þegar
ákveða skal starfsaldur núverandi
starfsmanna inn í launakerfið.
I trausti þess, að launareglugjörð
verði samin hið allra fyrsta og að sam-
vinna þar um megi takast milli launa-
nefndar bæjarstjórnar annarsvegar en
Starfsmannafélags Reykjavíkur hins-
vegar, getur launamálanefnd Starfs-
mannafélags Reykjavíkurbæjar fallist
á að „Samþykkt um laun starfsmanna
Reykjavíkurbæjar“ nái fram að ganga
hið allra fyrsta sem úrlausn á því vand-
ræða ástandi, sem nú ríkir, en jafn-
framt berum vér fram þá ósk, að at-
hugasemdir þessa álits vors verði tekn-
ar til athugunar í nefndinni, sem slíkri,
eða í meðferð málsins hjá bæjarstjórn-
inni og að agnúar þeir, sem kynnu að
koma í ljós á samþykktinni, yrðu síðar
lagfærðir í hinni endanlegu launareglu-