Starfsmannablað Reykjavíkur - 01.03.1939, Qupperneq 15
STARFSMANNABLAÐ REYKJAVlKUR
11
Karl Á. Torfason,
aðalbókari á skrifstofu bæjarins, átti
20 ára starfsafmæli 5. jan. s.l.. — Karl
Á. Torfason er fæddur 22. nóv. 1891,
sonur Ásgeirs Torfasonar og Þóru Guð-
jónsdóttur. Ólst hann upp til tvítugs-
aldurs hjá föðurafa sínum, merkisbónd-
anum Torfa Ólafssyni í Ólafsdal. Á bæj-
argjaldkeraskrifstofunni byrjaði hann
að vinna 5. jan. 1919, hjá þáverandi
gjaldkera, Borgþóri Jósefssyni, við bók-
færslu, en var skipaður bókari hjá bæj-
argjaldkera 1. okt. það sama ár, en aðal-
bókari 1. júlí 1930. Hefir Karl gengt
því starfi síðan og ætíð með stakri ár-
vekni og samvizkusemi. Hefir bókhald
bæjarins aukizt stórum hin síðari árin
og er aðalbókarastarfið með umfangs-
mestu störfum í bæjarrekstrinum.
Karl Á. Torfason er kvæntur Ástu
Guðmundsdóttur frá Nesi, og búa þau
hjón að Ólafsdal á Seltjarnarnesi.
Jón Sigurðsson,
skrifstofustjóri á skrifstofu bæjarins,
átti sextugs afmæli 8. jan. s.l. — Jón
Sigurðsson er fæddur 8. jan. 1879 að
Krossgerði á Berufjarðarströnd. Byrj-
aði hann að starfa á skrifstofu bæjarins
sem skrifstofustjóri 1. júlí 1923 og hef-
ir gengt því starfi síðan,en hafði áður
verið fulltrúi í bæjarfógetaskrifstofunni
hjá Jóni Magnússyni bæjarfógeta. Jón
fluttist til bæjarins 1903 og var þá skrif-
ari Halldórs Daníelssonar bæjarfógeta.
I þjónustu bæjarins hefir Jón einkan-
lega haft á hendi skrifstofustjórn fá-
tækramálefna bæjarins og nýtur þar
trausts og virðingar allra, sem til
þekkja, fyrir frábæra persónulega
kunnugleika og vandvirkni í starfi. Jón
er kvæntur Ingibjörgu Eyjólfsdóttur frá
Gufuskálum í Leiru. Börn þeirra eru:
Guðný Guðrún, Sigrún, Málfríður, Guð-
mundur og Anna Kristín.