Starfsmannablað Reykjavíkur - 01.03.1939, Page 16
12
STARFSMANNABLAÐ REYKJAVlKUR
Jón B. Jónsson,
Guðbjartur Ólafsson,
aðstoðarmaður á skrifstofum bæjarins
átti 20 ára starfsafmæli 4. febr. s. 1.
Jón B. Jónsson er fæddur 19. des. 1899
á Eyrarbakka, sonur Jóns Jóhannssonar
verkstjóra og Helgu Bárðardóttur konu
hans. Byrjaði hann að vinna sem skrif-
ari á bæjargjaldkeraskrifstofunni hjá
þáverandi bæjargjaldkera, Borgþóri
Jósefssyni. Nokkru síðar var hann skip-
aður bókari og gegnir hann því starfi
enn ásamt aðstoðarmannsstörfum við
innheimtu bæjargjalda.
Er Jón hverjum manni kunnugri á
sínu svið, og starfsmaður í bezta lagi.
Jón er kvæntur Sólveigu Daníelsdóttur,
Damelssonar f. dyravarðar í Stjórnar-
ráðinu. Er Jón búmaður mikill og búa
þau hjón að Efrihlíð við Reykjanes-
braut. *
hafnsögumaður varð fimmtugur 21.
marz s. 1. — Guðbjartur Ólafsson er'
fæddur '21. marz 1889 í Keflavík í
Rauðasandshreppi, sonur Ólafs bónda
Guðbjartssonar og Guðrúnar Jónsdótt-
ur konu hans. Tók hann við störfum sem
hafnsögumaður Reykjavíkurhafnar 1929
og hefir gegnt því starfi síðan. Hafði
hann áður verið skipstjóri á fiskiskip-
um, en við skipstjórn tók hann fyrst á
þilskipinu Esther árið 1913. Hefir Guð-
bjartur ætíð verið sjómaður góður og
hinn mesti heppnismaður á sjó, enda
bjargað mörgum mannslífum úr sjóvar-
háska, en kunnast er, þegar hann á
Esther bjargaði fjórum bátshöfnum frá
Grindavík, 24. marz 1916.
Hafnsögumannaliði Reykjavíkurhafn-
ar er hinn mesti sómi að slíkum starfs-
mönnum sem Guðbjartur er.
Guðbjartur er kvæntur Ástbjörgu