Bankablaðið - 01.07.1962, Síða 3
28. árg. 1.-2. tölubl. 1962.
Avarp frá framkvæmdanefnd
kúsky^ingarisjóðs
Eins og frá hefir verið skýrt hér í
blaðinu, var aðalfundur Fulltrúaráðs Sam-
bands íslenzkra bankamanna haldinn dag-
ana 27. og 28. okt. 1961. Meðal samþykkta
aðalfundarins er áskorun til sambandsfélag-
anna að gera átak til efiingar framtíðar-
starfinu með því að koma upp eigin húsnæði
yfir S.I.B. og starfsemi þess. Þar er skorað
á hvern sambandsfélaga að greiða á næstu
tveim árum mánaðarlega tuttugu krónur,
eða í einu lagi tvö hundruð og fjörutíu
krónur á ári, næstu tvö árin í framkvæmd-
arsjóð sambandsins, sem skuli varið til
kaupa á húsnæði fyrir starfsemina og
Bankablaðið.
Það þarf ekki að fjölyrða hér um það
vandræðaástand, sem S.Í.B. hefur átt við
að búa, allt frá stofnun þess, hvað sama-
stað snertir og annan aðbúnað af hálfu sam-
bandsfélaganna. Það hefur aldrei haft neinn
samastað fyrir starfsemi sína, Bankablaðið,
skjöl og annað tilheyrandi.
Einasti samastaðurinn hefur verið vel-
vilji starfsmannafélaganna, sem skotið
hafa skjólshúsi yfir það, hvert í sínum
banka, eftir því sem ástæður leyfðu hverju
sinni.
Ástandið er þannig í dag eftir rúmlega
tuttugu og fimm ára starf, að í eigu S. í.
B., er einn skápur í geymslu í Landsbank-
BANKABLAÐIÐ 1