Bankablaðið - 01.07.1962, Blaðsíða 5
ÓLAFUR STEINAR VALDIMARSSON:
AlþjóSleéi sumarskólinn 1961
Einn merkasti þátturinn í alþjóðlegu sam-
starfi bankamanna er án alls efa alþjóð-
legur sumarskóli þeirra. Fyrsti vísirinn að
þessum skóla var bankamannamót, sem
haldið var í London árið 1939 að tilhlutun
Institute oí Bankers. Það mót sóttu þrír ís-
lenzkir bankamenn. Þráðurinn var tekinn
upp að nýju 1948, enn undir forystu Insti-
tute of Bankers, sem boðaði það ár til sum-
arskólans í Englandi og aftur 1949. Síðan
hefur skólinn verið haldinn árlega, þriðja
hvert ár í Englandi, en annars í ýmsum
löndum til skiptis. Litið er svo á, að með
því að halda skólann þriðja hvert ár í sama
landinu, Jj. e. a. s. Englandi, verði starfs-
grundvöllur hans fastmótaðri og traustari.
Fyrst framan af sóttu íslenzkir bankamenn
skólann ekki að staðaldri, en nú um nokk-
ur undanfarin ár hafa farið héðan árlega
tveir og a. m. k. einu sinni Jarír þátttakend-
ur.
Sumarskólinn 1961, sem var hinn 14. íröð-
inni, var haldinn dagana 16.—29. júlí í
London og Oxford. Héðan sóttu skólann
Jóhann Ágústsson frá Landsbankanum og
sá, sem þetta ritar, frá Seðlabankanum.
Þátttakendur voru að þessu sinni 208 frá
51 landi, mismunandi margir frá hverju
fyrir sig, allt frá einum fulltrúa frá nokkr-
um löndum og upp í 24 frá Englandi. Þess-
um stóra og sundurleita hópi var ætlað að
búa fyrstu tvo daga skólans í gömlu, en
glæsilegu hóteli í miðri City.
Sunnudagseftirmiðdaginn 16. júlí söfn-
uðumst við saman til tedrykkju í salar-
kynnum hótelsins. Englendingarnir voru
óþreytandi við að leiða saman menn af
ólíku þjóðerni og koma af stað samræðum,
enda myndaðist strax þennan fyrsta dag
sá andi samhugs, sem löngum hefur þótt
einkenna sumarskólann og gefið honum
sérstæðan svip.
Daginn eftir var skólinn formlega settur
í húsakynnum Institute of Bankers af for-
seta þess, Sir Eric A. Carpenter, sem um leið
afhjúpaði tréskurðarmynd af skjaldarmerki
stofnunarinnar. Síðan flutti hagfræðingur-
inn Paul Bareau einkar áheyrilegt og fróð-
legt erindi um fjármálastofnanir í City.
Eftir að okkur höfðu verið sýndar tvær
stuttar kvikmyndir, önnur um Englands-
banka, en hin um kauphöllina, héldum
við til embættisbústaðar borgarstjórans í
City, en þangað hafði öllum hópnum verið
boðið. Tók borgarstjórinn, Sir Bernarcl
Waley Cohen, á móti okkur, flutti stutt
ávarp og bauð okkur að lokinni tedrykkju
að skoða þennan gamla, virðulega bústað
og merkilegt safn málverka og gullmuna,
sem þar er geymt.
Borgarstjórastaðan í City er með virðu-
legustu embættum í Englandi og tengdur
við hana fjöldinn allur af fornum erfða-
venjum, en embættið er aldrei veitt nema
til eins árs í senn. Umdæmi borgarstjórans
er ekki stórt eða aðeins rúm fermíla og
fastir íbúar innan við 5000, en þangað
koma hvern virkan dag um 400.000 manns
til starfa, og það segir sína sögu.
Um kvöldið var haldin móttökuveizla í
salarkynnum hótelsins. Auk okkar þátttak-
endanna voru þar ýmsir forystumenn Insti-
BANKABLAÐIÐ 3