Bankablaðið - 01.07.1962, Qupperneq 9
um saman um, að þessi vei/.la væri ein a£
ettirminnilegustu atburðum frá skólanum.
Skólanum var slitið föstudagskvöldið 28.
júlí við hátíðlega athöfn, þar sem m. a. var
viðstaddur aðalbankastjóri Englandsbanka,
jarlinn af Cromer, en hann hafði tekið við
embætti sínu 1. júlí. Hann er maður rúm-
lega fertugur að aldri og hefur ekki yngri
aðalbankastjóri verið við þessa stofnun í
tæplega 200 ár.
Morguninn eftir dreifðist hópurinn, sum-
arskólanum var lokið.
Það verður ekki skilið svo við þessa grein,
að ekki sé minnst á stjórn skólans og skipu-
lag. Henry Eason, framkvæmdastjóri Insti-
tute of Bankers og stjórnandi skólans, seg-
ir, að unnið hafi verið að undirbúningi hans
nær stöðugt í tvö ár. Árangurinn lét heldur
ekki á sér standa. Skipulag skólans var með
þeim ágætum, að hvergi var á betra kosið,
og var skólahaldið allt enskum bankamönn-
um mjög til sóma, auk Jaess sem gestrisni
Jjeirra og alúð var viðbrugðið.
Sumarskólinn er fyrir löngu búinn að
sanna tilverurétt sinn og okkur hér norður
í hjara veraldar er ekki síður nauðsynlegt
en (iðrum bankamiinnum, að eiga Jiess kost
að sækja j)angað fróðleik og blanda geði
við menn með gerólík sjónarmið.
Tuttugu oé fiuim ára
starfsafmæli
Svanbjörn Frímannsson, bankastjóri,
átti tuttugu og fimm ára starfsafmæli í
Landsbankanum 23. marz s. 1., sem banka-
maður á hann enn lengri starfsaldur að
baki, en hann var um árabil starfsmaður
Útvegsbankans á Akureyri og er meðal
stolnenda að Starfsmannafélagi Útvegs-
bankans.
Sextiu og fimm ára:
Haraldur Jokannessen
aðalfékirSir
Haraldur Johannessen, aðalféhirðir
Landsbanka Islands, varð sextíu og fimm
ára hinn 5. apríl s.l. Ekki verður að Jjessu
sinni rakin ætt hans eða uppruni, en vitað
er að hann er af góðum stofni, þéttur á
velli og íastur fyrir, ef J)ví er að skipta.
Haraldur réðist í þjónustu Landsbankans
fyrir nær fjörtíu árum og hefur helgað
stofnuninni ævistarlið. Þar hefur hann
gegnt ýmsum mikilvægum trúnaðarstörf-
um og ber þar hæst störf hans sem aðal-
fulltrúi í víxladeild og nú hin síðari ár,
sem aðalféhirðir bankans. Öll störf hefir
hann rækt af alúð og snyrtimennska í
starfi er honum í blóð borin.
Á yngri áruni tók Haraldur virkan þátt
í félagsmálum og var tim árabil forystumað-
ur m. a. í íþróttafélagi Reykjavíkur. Hann
átti drjúgan J)átt í stofnun Félags starfs-
manna Landsbanka íslands árið 1928. Hann
átti sæti í fyrstu stjórn íclagsins og var J)ar
í forystu um margra ára skeið. Þá var Har-
aldur einn af hvatamönnum að stofnun
Sambands íslenzkra bankamanna og fyrsti
forseti sambandsins. Bankablaðið studdi
hann með ráðuni og dáð, skrifaði þar ntarg-
ar hvatningagreinar til stuðnings samtök-
um bankamanna.
Þó að Haraldur hafi ekki hin síðari ár
haft mikil afskipti af félagsmálum banka-
manna, ])á hefur hann ætíð verið boðinn
og búinn til að leggja okkur yngri mönn-
unum í samtökunum góð ráð og leiðbein-
ingar.
I nafni íslenzkra bankamanna færi ég
Haraldi Johannessen og fjölskyldu hans
beztu heillaóskir í tilefni afmælisins.
BANKABLAÐIÐ 7