Bankablaðið - 01.07.1962, Síða 16

Bankablaðið - 01.07.1962, Síða 16
vegis skuli prófað í öllum námsgreinum skólans og fór prófið fram 7. desember. Var það skriflegt og voru prófspurningar 38 og valdar af skólanefnd eftir tillögum kennara. Skólauppsögn fór fram 15. des- ember og fengu allir þeir nemendur, er luku tilskildu prófi, próískírteini frá skól- anum. Skólanefndin. Skólanefndina skipa nú eftirtaldir menn: Björn Tryggvason skrifstofustjóri Seðla- banka íslands. Gunnlaugur G. Björnson fulltrúi í afurðalánadeild Útvegsbanka íslands. Hannes Pálsson útibússtjóri við Austur- bæjarútibú Búnaðarbankans, og Höskuldur Ólafsson fulltrúi í Lands- banka íslands. Kennslubækur og fræðslurit. Það háir skólanum mjög, að það eru •ekki til neinar hentugar íslenzkar kennslu- bækur, bæklingar eða fræðslurit um banka- starfsemi og bankamál. Það verður að vera eitt af verkefnum skólans að ráða bót á þessu og hefur þegar verið tekin ákvörðun um það. Lögfræðihandbók fyrir bankamenn. Skólanefndin hefur farið þess á leit við Vilhjálm K. Lúðvíksson lögfræðing, að hann tæki saman lögfræðilega handbók fyr- ir bankamenn, og hefur hann fallizt á það. Handritið mun byggjast að mestu á fyr- irlestrum þeim, er Vilhjálmur flutti á síð- astliðnu ári á vegum skólans. í stórum dráttum mun Vilhjálmur skipta efninu í jrrjá megin þætti. í fyrsta þættinum verður gerð grein fyrir þeim réttarreglum, sem gilda um all- ar athafnir manna gagnvart bönkunum, svo sem lögræði, heimild til að skuldbinda aðra menn eða félög. Atriði, sem valda því, að yfirlýsing manns eða athöfn hefur ekki gildi. Og loks um fjármál hjóna. í öðrum þættinum verður lýst reglunr Jreim, sem gilda um skjöl þau, sem bank- arnir nota mest, svo sem skuldabréf, víxla og tékka. Einnig verður gerð grein fyrir svokölluðum viðskiptabréfsreglum. Og loks verður vikið að ógildingu skjala og verð- bréfa. í Jrriðja og síðasta þættinum verður gerð grein fyrir því á hvern hátt bankarnir tryggja sig fyrir hugsanlegu tjóni í viðskipt- um sínum, þar með talin veð, þinglýsingar og ábyrgðir á skuldum (sjálfskuldarábyrgð og einföld ábyrgð). Síðast í þessum þætti verður lýst réttar- farsreglum, það er málsókn, aðför og nauð- ungarsölu. Handritið verður ekki lögfræðilegt í þess orðs fyllstu merkingu. Því er ætlað að vera starfsfólki bankanna til leiðbeiningar í daglegu starfi. Aðeins gefnar reglur, sem eru skýrar og ótvíræðar. Vafaatriði verða ekki brotin til mergjar og atriði verða ekki rakin svo tæmandi sé. Ef það gæti orðið til þess að skapa bankamönnum öryggi i starfi þeirra og gefið þeim leiðbeiningar um, hvenær rétt er að leita til lögfræðinga bankanna, jrá er tilganginum náð. Bankaábyrgðir. Skólanefnd hefur einnig falið Gunnari H. Blöndal að taka saman efni um banka- ábyrgðir (Commercial Documentary Letters of Credit). Ábyrgðarviðskipti eru þegar orð- in mjög víðtæk í íslenzkri utanríkisverzl- un og mikilvægur þáttur í starfsemi bank- anna. Mun verða gerð grein fyrir bankaábyrgð- 14 BANKABLAÐIÐ

x

Bankablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.