Bankablaðið - 01.07.1962, Side 27

Bankablaðið - 01.07.1962, Side 27
EINAR A. JÓNSSON: SparisjóSur Reykjavíkur og nágrennis 30 ára Hinn 23. janúar 1932 var formlega geng- ið frá stofnun sparisjóðsins á fundi í bað- stoíu iðnaðarmanna í Iðnskólanum gamla, en fyrsti undirbúningslundurinn að stofn- un hans var haldinn 15. maí 1930. Tók sjóð- urinn til starfa 28. apríl 1932. Frumkvæðið að stofnun sparisjóðsins áttu félagsnrenn úr Iðnaðarmannafélaginu, og höfðu á fundi, er haldinn var 27. febrúar 1930, kosið nefnd til þess að atliuga um stofnun sparisjóðs. í nefndina voru kosnir finrm menn, sem allir eru nú látnir, en þeir voru Björn Kristjánsson, alþingismaður, Jón Þorláksson, fyrrv. ráðherra, Knud Zim- sen, borgarstjóri, Sigurður Halldórsson, tré- smíðameistari og Jón Halldórsson, hús- gagnasmíðameistari. Nefndin kaus sér for- mann Björn Kristjánsson og ritara Jón Þorláksson. í fyrstu stjórn sparisjóðsins voru kosnir Jón Þorláksson, fyrrv. ráðherra, Gústaf A. Sveinsson, hæstaréttarlögmaður, Jón Hall- dórsson, húsgagnasmíðameistari, Guðmund- ur Ásbjörnsson, forseti bæjarstjórnar og Helgi H. Eiríksson, skólastjóri. Fyrstu endurskoðendur voru kjörnir Ein- ar Erlendsson, húsameistari, og Björn Steff- ensen, endurskoðandi. Jón Þorláksson var kjörinn fyrsti for- maður sjóðsins og var það til dauðadags. Næsti formaður var Guðmundur Ásbjörns- son, forseti bæjarstjórnar, og gegndi hann lengst allra formannsstörfum sjóðsins. Eftir andlát hans tók við formennsku Helgi H. Eiríksson, skólastjóri, og gegndi hann því starfi, þar til hann var ráðinn bankastjóri Iðnaðarbanka íslands. Núverandi fonnað- ur, Einar Erlendsson, fyrrv. húsameistari ríkisins, tók við af lionum, en Einar var kjörinn fyrsti endurskoðandi sjóðsins og hefur því starfað við hann frá byrjun. Stjórn sparisjóðsins er skipuð fimm mönnum, og kjósa ábyrgðarmenn, sem eru 74 að tölu, þrjá af þeim, en bæjarstjórn tvo og einnig báða endurskoðendur, en Björn Steffensen hefur verið endurskoðandi sjóðsins frá stofnun. Núverandi stjórn sjóðs- ins er skipuð eftirtöldum mönnum: Einar Erlendsson, fyrrv. húsameistari ríkisins, for- maður, Sigmundur Halldórsson, arkitekt, Ásgeir Bjarnason, skrifstofustjóri, Bjarní Benediktsson, ráðhetTa og Baldvin Tryggva- son, framkvæmdastjóri. Sparisjóðsstjórar hafa verið tveir frá stofnun hans. Fyrstu 10 árin annaðist Ásgeir Bjarnason framkvæmdastjórn, en síðustu 20 árin hefur Hörður Þórðarson gegnt því embætti. Gjaldkerar sjóðsins hafa verið tveir frá upphafi. Fyrsti gjaldkeri sjóðsins var Einar Magnússon, en núverandi Einar A. Jónsson, er starfað hefur við sjóðinn síðastliðin 20 ár. Vöxtur sparisjóðsins hefur verið ótrúleg- ur, t. d. voru á fyrsta aðalfundi sjóðsins 1933 lagðir fram reikningar, og voru þá spari- sjóðsinnstæður 400 þúsund, en nú eru þær um 140 milljónir, og varasjóðurinn nemur nú rúmum 8 milljónum. Viðskiptamenn parisjóðsins eru um 18000, og eru þeir úr öllum stéttum þjóðfélagsins. Starfsemi sparisjóðsins hefur svo að segja eingöngu beinzt að því að veita íbúðalán. BANKABLAÐIÐ 25

x

Bankablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.