Jazzblaðið - 01.05.1948, Qupperneq 10

Jazzblaðið - 01.05.1948, Qupperneq 10
U R YM 5 U M ATTU M Um Be-bob. Um 1940 var klúbbur, sem nefndur var „Minton’s Playhouse" til húsa í Cecil hótel- inu í Harlem svertingjahverfi New York borgar. Framkvæmdarstjóri hans var og er enn hinn fyrrverandi hljómsveitarstjóri Teddy Hill. Joe Guy stjórnaði fjögurra manna hljóm- sveit hússins, honum svipar mikið til Roy Eldridge — sem hann dáist mjög að, og þegar Roy eða Hot Lips Page eða Charlie Shavers léku að gamni sínu með, var Joe til með að rjúka upp úr öllu valdi á trompetinn þegar samkeppnin jókst. Unglingur að nafni Dizzy Gillespie leit stundum inn með trompetinn sinn og lék hin óvenjulegustu og undarlegustu jazztónbrigði, en enginn tók hann alvarlega vegna hins óþýða tóns hans. Þarna var Ieikið í fimm tíma á hverju kvöldi og í ca. þrjá tíma léku vanalega einn eða tveir aðkomumenn með hljómsveitinni. Fjögur eða fimm kvöld í viku var reglulegt fjör þarna. Liti maður fram í salinn, mátti sjá Benny Goodman, Harry James, Art Tatum og marga marga fleiri, meðal annars ungra negra-músikanta, sem síðan þá hafa orðið frægir... Þeir ólust upp í andrúmslofti „Minton’s“ og músik sú, sem þeir leika í dag kölluð Be-bop. Geri aðrir betur. George VI. Bretakonungur á afar stórt jazz-plötusafn og er altalað í Stóra-Bret- landi að hann skemmti sér og hinni kon- unglegu fjölskyldu, nærri því á hverju kvöldi eftir kvöldverð, með plötu-hljómleikum. Hann hefur mjög lít- inn áhuga fyrir klass- ískri músik. Þessi á- gæti konungur, er ekki sá eini, sem hefur mæt- ur á jazz, heldur er hann frábært dæmi hinna mörgu persóna, á hvaða aldri, kyn- þætti, trúarflokki og litarhætti sem er, er hafa hina mestu ánægju og skemmtun af jazz-músik. Hertoginn af Windsor er jafnvel ennþá þekktari en George konungur VI. fyrir hollustu þá er hann sýnir jazz-músikinni; Þegar hann afsalaði sér völdum og yfirgaf Bretland, tók hann hið mikla plötusafn sitt með sér, hvert sem hann fór. Að endingu. Húsfreyjan sat ásamt einum gesta sinni úti á svölum og bárust háværir ómar symfóníu- i'iljómsveitar (frá útvarpinu) út til þeirra. „Yndislegt, finnst yður það ekki?“, sagði frúin. „Hvað segið þér?“, sagði gest- urinn. „Finnst yður þetta ekki yndislegt?" „Þér verðið að tala hærra, ég heyri ekkert fyrir þessum helv ... hávaða“. 10

x

Jazzblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jazzblaðið
https://timarit.is/publication/722

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.