Jazzblaðið - 01.10.1948, Side 5
Hljómsveit Baldurs: Baldur píanó, Stefán Þorleifsson tenór-sax, Vilhjálmur Guðjónsson
altó-sax og klarinet, Maririó Guðmundsson trompet oy Karl Karlsson trommur.
Stefán Þorleifssön, með tenór-sax og har-
rnóniku.
í byrjun ársins 1948 stækkaöi Baldnr
hljómsveitina og réði Marinó Guðmundsson
til sín, nieð trompet og' guitar. Síðasta
breytingin á hljómsveitinni var svo í vor,
cr Þórhallur Stefánsson hætti, en í hans
stað kom Vilhjálmur Guðjónsson, með altó-
saxafón og klarinet. Er hljómsveitin eins
og hún er nú skipuð, tvímælalaust sú bezta,
er Baldur hefur haft. Leika þeir prýðilegar
útsetningar, og hefur Baldur útsett margar
þeirra.
Síðastliðin tvö ár hefur Baldur veriö
að læra á wald-horn (franskt horn) hjá
Wilhelm Lanzky Ottó. Byrjaði hann að læra
á wald-liornið, með það fyrir augum að leika
á það, síðar meir, í klassiskri músik. Einnig
hefur hanil leikið klassiska músik mikið
á píanó, og þá aðallega í veizlum í Tjarn-
arcafe.
Baldur hlustar mikið á plötur, eins og
yfirleitt allir hljóðfæraleikarar gera. Mesta
ánægju hefur liann af, að hlusta á góðar
píanósólar og af jazz-píanistum finnst hon-
um, hinn frægi píanóleikari og söngvari
King Colc og' hinn blindi snillingur Art
Tatum, beztir. Af hljómsveitum finnst hon-
um, eins og flestum öðrum er ánægju hafa
af jazz, hljómsveit Duke Ellingtons bezt
og í stöðugri framför. Þeir hljóðfæraleikar-
ar, sem á undanförnum árum hafa byrjað í
hljómsveitinni, gefa hinum gömlu snilling-
um ekkert eftir, og sumir skara langt fram
úr, eins og t. d. trompetleikarinn Taft
Jordan (bróðir Louis Jordan), bassaleikar-
inn Oscar Pettiford, klarinetleikarinn
Jimmy Hamilton og tenór-saxistinn A1
Sears. Af litlum hljómsveitum finnst
Baldri, King Cole tríóið lang bezt, og þó
að tveir af hinum gömlu meðlimum þess,
1-eir Oscar Moore og Johnny Miller séu nú
hættir, megi alltaf finna góða menn í stað-
inn, því Cole sjálfur hafi alltaf sett mest-
an svip á tríóið. Hvað Be-bob viðvíkur á-
lítur Baldur, að þeir sem leika Be-bob þurfi
að hafa mikla tækni og vera „rhythmiskir"
og ekki hvað sízt hugmyndaríkir. Be-bob
cr að bans áliti stærsta sporið, sem hafi
verið stigið til framþórunar góðs jazz.
Að leika í Jam-Session er eitt það
skemmtilegasta, sem Baldur gerir, enda
koma þá vel í ljós hinir sérstæðu hæfileikar
hans og mikla leikni. — H. S.
jazzlUii 5