Jazzblaðið - 01.10.1948, Page 9
Fletcher Henderson fæddist árið 1898.
Fyrstu hljómsveit sína stofnaði hann um
tvítugt. Hún náði frægð er þeir léku á
„Club Alabam“ í New York árið 1924. Síð-
an léku þeir í sjö ár samfleytt í hinum
þekkta danssal í New York, Roseland.
Síðan fóru þeir í hljómleikaferð um
Bandaríkin og léku þaðan í frá mikið til
í Chicago. Með Fletcher hafa leikið margir
jazzleikarar, sem síðar hafa náð mikilli
frægð. Svo sem Coleman Hawkins, Louis
Armstrong, J. C. Higginbotham, Buster
Bailey, Red Allan og fleiri. Fletcher hefur
löngum verið talinn einhver fremsti hljóm-
sveitarstjóri, sem uppi hefur verið. Hann
hefur þar að auki verið í röð fremstu út-
setjara. Hann útsetti mikið fyrir Benny
Goodman, og lék m. a. með honum á píanó
inn á plötur. Hann á bróðir, sem Horace
heitir, og leikur sá einnig á píanó. Hann
lék um skeið í hljómsveit Fletcher. Stíll
þeirra e'r mjög líkur. Á plötunum „Just
blues“, Sugar foot stomp“ og „Tidal Wave“
með Henderson hljómsv., leikur Fletcher á
píanóið.
Þetta bréf sendir „Nýr áskrifandi“, og
því svarað eins ítarlega og unnt liefur
verið.
Til skamms tíma liefur lítiö verið gert
að því að kynna jazzinn fyrir fólki liér á
landi oy eru þvl margir lítt fróöir um
liann eða snillinga hans. Ég tel mig einn
liinna ófróðu og langar mig nú, þar sem
þetta ágæta málgagn jazzins hefur nýlega
borizt mér í liendur, að fá leyst úr vand-
ræöum mínum. Ég á nokkrar jazzplötur,
en veit ekki nöfn nærri allra, sem á þeim
leika. Svo hefur mér verið tjáð að tenór-
saxafón leikarinn Clioo Berry sé dáinn, er
þetta satt? Hvaða fleiri þekktir jazzleikar-
ar liafa látizt síðari árin ? Væri síðar meir
hægt að fá nánari upplýsingar um hverjir
leika á plötum, sem þá verða nafngreindár?
Nýr áskrifandi.
Frá því að blaðið hóf göngu sína, hefur
það ætíð verið reiðubúið til að leysa úr
spurningum manna, hvort heldur þær liafa
verið um jazzleikara eða plötur og verður
slíkt gert áfram. Satt er það, að Choo
Berry er látinn. Hann dó fyrir fimm árum.
Aðrir þekktir jazzleikarar, sem eru ekki
lengur í tölu lifenda eru, klarinetleikararnir
Rod Cless, Jolinny Ilodds, Frank Teschmch-
er og Jimmy Noone. Ttrompetleikararnir
King Oliver, Joe Smith, Tommy Ladnier,
Bix Beiderbecke, Bunny Berigan og Sonny
Berman. Trommuleikararnir Tubby Hall,
Spencer O’Neill, Chick Webb og Kaiser
Marshall. Trombónleikararnir Jack Jenny,
Tricky Sam Nanton og Glenn Miller. Guit-
arleikararnir Eddie Lang, Dick McDonough
og Charlie Christian. Bassaleikarinn Jimmy
Blanton, hljómsveitarstjórinn Jimmie Lun-
ceford og jazzsöngvarinn Red McKenzie.
„Four leaf clover"
l’m looking over a four leaf clover
tliat I overloóked before.
One leáf is sunshine, second rain.
Third is tlie roses that groiv in the lain.
No need explaining the one remaining
is somebody I adore.
I’m loolcing over a four leaf clover
that I overlooked before.
Hver er maðurinn?
Svar á bls. 15.
jazdtaíií 9